Pestargemlingur

Síðustu tvær vikurnar hef ég verið með illt í hálsinum og smotterískvef.  En einhvern veginn ekki nóg til að halda mig á mottunni og láta mér batna.  Enda hefur þetta ekki batnað.  Svo á sunnudaginn bættist við augnsýking í öðru auganu.  Ég fór í vinnuna á mánudaginn, ómáluð og með gleraugu svo ég sæi eitthvað.  Á þriðjudagsmorgun eru bæði augu kapútt og ég ákvað að halda mig heima á meðan þessi ósköp ganga yfir.  Í morgun er ég örlítið skárri, augun þó enn þá eitthvað að angra mig en hálsbólgan að fara.  Loksins!  Ég velti fyrir mér hvort ég hefði komist af með minni þjáningar ef ég hefði bara haft vit á því að slappa af strax?  En svona er þetta, maður er samviskusamur með afbrigðum, meira að segja þótt það komi niður á eigin heilsu.  Þetta er ekki í samræmi við áramótaheitið um að vera betri við sjálfa mig.  En það var hringt í mig úr vinnunni dag til að gá hvort ég kæmi í dag eða ekki.  Síðan er ég búin að vera með samviskubit, þótt ég sé í raun ekki almennilega vinnufær.  Hvað er maður vitlaus?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dísa Dóra

Láttu þér batna almennilega áður en þú ferð til vinnu svo þú sért nú viss um að fá þetta ekki aftur og jafnvel verra en það var.  Eitthvað kannast ég við svoleiðis

Batakveðjur 

Dísa Dóra, 27.2.2008 kl. 15:53

2 Smámynd: Ólafur fannberg

átt ekki að vera með samviskubit yfir því að vera veik.

Ólafur fannberg, 27.2.2008 kl. 23:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Guðmundsdóttir
Þórdís Guðmundsdóttir
Áráttukrotari og úthverfabúi

Færsluflokkar

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 22247

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nota bene

Veður

Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Nýjustu myndir

  • orchid-07
  • Svo þetta
  • Fyrst kom þetta

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband