Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007

Lagið hans Stefáns

Þegar Siggi var úti í Köln fyrr í vetur keypti hann þennan disk og kom með heim.  Við höfum aldrei átt disk með Grappelli sjálfum, bara heyrt í honum í samhengi við Django Reinhardt svo það var kominn tími á að skoða manninn betur.  Sumir eldsúrir djassmenn á netinu halda því fram að þetta sé ekki "alvöru" djass, bara nostalgía, en við hlustum ekki á svoleiðis tuðara.  En "nýja" uppáhaldslagið mitt er þetta og einnig er hægt að heyra á þessum disk hið stórgóða lag "Oh by Jingo" sem Bertie Wooster tók svo eftirminnilega í Jeeves og Wooster þáttunum.  Ég hef reyndar gríðarlega gaman af öllu sem tengist þessum tíma, hönnuninni, tónlistinni og tíðarandanum.  Kannski var ég að bauka eitthvað þarna í fyrra lífi?  Eða kannski ég var bara sléttuindíáni eins og annar hver andlega sinnaður Íslendingur var í fyrra lífi, sérstaklega um 1988.Wink

Langur mars búinn

Maður lifandi hvað þetta var stressandi mánuður.  Eins og Omron mælirinn minn getur vitnað um (hann er nebblega með minni) er blóðþrýstingurinn í hærri kantinum þessa dagana.  Ég kenni um langvarandi svefnleysi, stressi og 111 meðferð á Þórdísum.  En mars er að verða búinn og páskavikan að byrja.  Skattskýrslan var kláruð í gær og Þórhildur þurfti ekki að gera sér sérferð í Kópavoginn til að hjálpa mér heldur var með svona fjaraðstoð í síma og tölvu.  Takk fyrir það!

Sumir kúnnanna í vinnunni haga sér merkilegt nokk eins og jólin séu að koma og þurfa afskaplega mikið á hlutunum sínum að halda fyrir páska og því miður þá viðra sumir líka fýluskapið sem ég hélt að væri almennt bara bundið við desember.  En kosturinn við havaríið sem hefur gengið yfir hérna að maður tekur ekkert nærri sér ergelsi annarra, gerir það sem maður getur og ef það er ekki nóg þá er það bara þeirra vandamál.  Eins er ég tiltölulega ónæm fyrir stjórnmála og álversumræðum og held ég spenni mig ekki upp yfir svoleiðis heldur.  Sýnist vera alveg nóg af fólki til að sjá um þá hlið mála án þess að ég fari að pressa upp þrýstinginn fyrir slíkt hjal.  Ég er búin að ákveða hvað ég kýs í vor, byggi það á fjögurra ára reynslu og svo ágætis minni fyrir stjórnmálasögunni en ekki á kosningaauglýsingum. 

Ég held að það sé kominn tími á að gera eitthvað skemmtilegt.  Hvað haldið þið?


Innkaupaferð með Huldu

Við fórum að versla í Nóatúni um daginn og tókum yngri dótturina með.  Hún útvegaði sér litla kerru og rölti með hana um búðina og hugðist gera magninnkaup á kaffi og sjampói.  Pabbi hennar var nú á því að það myndi ekki ganga því Hulda ætti enga peninga.  Okkar manneskja svaraði að bragði (og með nokkrum þjósti) "Þeir vilja ekki peninga!"

Annars er allt bærilegt að frétta héðan.  Valgerður er hálfaum ennþá og fékk kvef svona í kaupbæti við annað.  Okkur býðst að fara í svona foreldrahóp fyrir börn eins og Huldu og mig vantar aðstoð fyrir Valgerði á mánudagskvöldið á meðan við erum í burtu.  Einhverjir umsækjendur?


Skíðabylta

http://www.visir.is/article/2007103200116 

Dóttir mín er ein af þessum fimm.  Lúsheppin að brotna ekki í spað en hnéskelin fór á ferðalag út á hlið.  Valgerður er í gifsi frá ökkla og upp í nára.


Digursky!

Valgerður á afmæli í dagi!  Hún hélt feikna veislu með fullt af stelpum í gærkvöldi og við hin skruppum í Hafnarfjörð á meðan og borðuðum Búlluborgara.  Svo gistu tvær vinkonur nóttina hjá henni og ég tróð þær svo út af amerískum pönnukökum í hádeginu.  Reyndar skulum við kalla þær kanadískar pönnukökur þar sem hlynsíróp var notað með þeim.  Valgerður og Ýr voru feiknaduglegar að baka fyrir veisluna og gerðu meðal annars sérskreytta hunangstertu að hætti Nigellu subbukokks.  Fín kaka en skal neytt í hómópatískum skömmtum því hún er gríðarlega sæt.

Við vorum hins vegar geysilega dugleg í vikunni og máluðum herbergið hennar í retrógrænum lit og afrekuðum það á minna en tólf tímum þrátt fyrir aðrar annir.  Enda er gamla settið doldið lúið núna.

En í kvöld verður eldaður huggulegur matur fyrir ungu konuna, gefnir pakkar og glápt á vídjó.

Annars, má búast við því að undirrituð trekki aftur í gang í bloggheimum, það hefur bara verið svo fruntalega mikið að gera.  En heimur batnandi fer, skatturinn bráðum búinn og bara þrír fundir/læknisheimsóknir eftir í þessum mánuði.  Mikið ætla ég að hafa það næs um páskana!

Valgerður og eyra

Höfundur

Þórdís Guðmundsdóttir
Þórdís Guðmundsdóttir
Áráttukrotari og úthverfabúi

Færsluflokkar

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nota bene

Veður

Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Nýjustu myndir

  • orchid-07
  • Svo þetta
  • Fyrst kom þetta

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband