Bloggfærslur mánaðarins, október 2007

Stórkostlegur áfangi.

Það urðu þvílíkar framfarir í gærkvöldi að það bara verður að blogga um það.  Það hefur alltaf verið erfitt að klippa táneglur á ungu dömunni og oftast þurft að gerast í svefni eða þá að öll fjölskyldan hefur sameinast um verkið við mikinn grát og gnístran tanna.  Hulda var reyndar búin að gefa út þá yfirlýsingu fyrir nokkrum vikum að neglurnar skyldi mála og ekki klippa.  Í gær datt mér í hug að bjóða nýja aðferð:  Mæta með naglalakksglasið og naglaklippurnar og kynna málið þannig að fyrst yrði klippt, svo yrði málað.  Viti menn!  Stúlkan réttir fram fótinn orðalaust og neglur voru klipptar.  Henni fannst þetta greinlega óþægilegt en lét sig hafa það og eftir á kom stóra systir og lakkaði neglurnar huggulega fölbleikar.  Það hefur örugglega hjálpað til að Þórhldur og Guðrún voru hjá okkur og hún hefur verið ákveðin í að standa sig fyrir framan þær.  En, þetta gekk alveg stórkostlega og daman fékk gríðarlegt hrós fyrir frammistöðuna og Guðrún tók mynd af fínu tánum hennar. 

Áðan fór ég svo með Huldu í talþjálfun og hún stendur sig gríðarlega vel þar og tekur miklum framförum.  Dugleg stelpa!


Ferðalag á fullu tungli

Við brugðum okkur í sveitina þessa helgi, nánar tiltekið í Biskupstungur.  Þegar við vorum að leggja af stað á föstudaginn sáum við að að það var fullt tungl.  Einhvern veginn hefur fullt tungl og samkvæmishald gengið brösuglega hjá okkur í gegnum tíðina, til að mynda þurfti einu sinni að kalla til sjúkrabíl í matarboði sem við héldum því  óttast var að einn gesturinn væri að fá fyrir hjartað!

Með okkur komu Gaflararnir og dóttir þeirra.  Fyrsta atrenna kom á föstudagskvöldið þegar húsbandið hélt að hann væri búinn að láta renna í pottinn en kom svo inn, dálítið skringilegur í framan, og sagði: "Heyrðu Þórdís!  Þarf maður að láta tappa í botninn á pottinum?"  Þá var potturinn ennþá tómur en hvergi fannst tappinn.  Reyndar fannst hann eftir smá leit við hliðina á pottinum, í keðju nota bene og þá var hægt að láta renna í pottinn.  Um kvöldið hugðist fólk svo skreppa í umræddan pott.  Hafnfirska húsbandið fór fyrst út, opnaði pottinn, settlaði rauðvínsglasið og hafði það náðugt.  Við hin fullorðna fólkið fylgdum á eftir.  Allt var þetta gott og fínt þar til atburðarrásin fór svona í slow motion.  Við frýrnar sáum lokið á pottinum byrja að detta ósköp rólega en samt of hratt til að nokkuð væri hægt að gera í því.  Það datt svo í hausinn á þrem af fjórum með brauki og bramli.  Við fengum kúlur og auma skalla en sem betur fer ekkert verra.  Þá hafði gleymst að festa bannsett lokið.  Að því loknu var farið upp úr, sest niður inni til að róa taugarnar og farið að sofa.  Allt í góðu lagi þar til....

...klukkan fimm, en þá hófu eiginmaðurinn og unglingurinn að kasta upp hvort í kapp við annað.  Eða kannski skiptust þau á.  Þá voru þau komin með mígreni, líklega af völdum eldunarvínsins sem var notað í matreiðsluna og hafði verið keypt í Nóatúni.  Undir morgun hættu uppköstin en sjúklingarnir sváfu fram eftir degi og nýttu sér verkjatöflurnar sem ég hafði af rælni keypt á síðustu stundu.

Um kvöldið var verið að grilla lambalæri, undirbúa Hasselback kartöflur og gera klárt fyrir dýrindismáltíð þegar hvað gerist?  Rafmagnið fór í uppsveitum Árnessýslu.  Eitthvað var hún vinkona mín óhress með að geta ekki búið til sveppasósuna sína með þessu en við reyndum að redda þessu, bjuggum til salat og smjör þurfti að duga sem meðlæti.  Eins og gefur að skilja vorum menn ekki mjög matlystugir í þessu borðhaldi og á endanum vorum það bara ég og Gunni sem sátum að narta í matinn.  Ég hafði, af sömu rælni og áður, gripið með mér poka af kertum, svona teljósum og stungið kertakveikjaranum með.  Það kom sér aldeilis vel í myrkrinu, bæði fyrir og okkur og svo fyrir Kertasníkjana tvo sem bönkuðu upp á í myrkrinu og báðu um kerti.  Rafmagnið kom svo loksins, þá var minnsta barnið sofnað og búið að setja það í rúmið, eiginmennirnir lognuðust svo útaf, þvi næst unglingarnir og við vinkonurnar gengum svo til náða upp úr tólf.  Partístuð á laugardegi.En ég var svosem ekki til stórræðanna hvort eð er og hafði afar gott af því að hvíla mig aðeins.  Er uppálagt að gera meira af því af yfirvöldunum og ætla að hlýða....

Þannig að kannski er betra að skoða hvað tunglið er að gera áður en maður bókar sér sumarbústað!  Nei, ég segi bara svona.


Loftbylgjur...

...eða Airwaves hafa verið allsráðandi í minni vinnu síðustu tvær vikurnar.  Og á meðan við framleiðum diska í gríð og erg fyrir ung og upprennandi bönd er maður gjörsamlega á sprettinum á meðan.  Þannig að það var afar ánægjulegt að hátíðin skyldi byrja í dag og sömuleiðis að síðustu verkin kláruðust.  Það er reyndar svaka gaman að gera þetta en maður lifandi hvað ég er þreytt núna. Það stóð þó til að halda áfram framkvæmdum á heimilinu í vikunni, við keyptum fleiri ljós um helgina og settum eitthvað af þeim upp, en ég er bara ekki að meika framkvæmdir eftir svona daga.  En það er víst nýr dagur á morgun eins og hún Scarlett O'Hara sagði. 

Oss erum gengin til hvílu í bili...


Kúnstugur köttur

Guðbrandur Erlingur Harðarson (a.k.a. Kisi) hefur verið staðinn að bellibrögðum nokkrum sinnum.  Það hefur sést til hans þar sem hann ýtir stól upp að lokuðum hurðum, fer upp á stólinn og opnar viðkomandi hurð.  Hann reyndi að opna inn á húsbóndann á heimilinu í sturtu um daginn og í kvöld reyndi hann að opna inn til Valgerðar sem brást heldur ill við.  Enda gæti það reynst kettinum skeinuhætt að fara inn í hellinn þann, í það minnsta hættir annað heimilisfólk sér ekki inn að óþörfu!Wink

Helgin fór í ýmis konar pot og lagfæringar og það er langt í að við séum búin að öllu slíku.  En það er komið númer á húsið, búið að laga póstlúguna, búið að panta rúður hjá Íspan, búið að kaupa útiljós(vantar bara rafvirkjann!) og núna á eftir skal gert að borðinu sem ég sit við núna.  Á það verður skrúfað tölvustatíf, lyklaborðshilla og grind til að organisera snúrur og halda þeim frá gólfinu.  Já, ég fékk líka hillu samsetta um helgina og hún stendur núna við hliðina á borðinu.  Næst á dagskrá er að losna við annarra manna drasl úr herberginu, taka til og þá ætti að hýrna aðeins yfir minni.  Bræðragengið ætlar að koma hér í dagsbirtu von bráðar og setja niður grind fyrir pallinn.  Sumarverkin endast okkur fram á vetur í þessari sveit!

Systurnar sátu báðar heima í gær þar sem að það var skipulagsdagur í báðum skólum.  Þær fögnuðu fríinu með því að sofa ótæpilega og glápa á sjónvarpið.  Hulda er enn mikil mömmumanneskja og sagði áðan þegar ég kom að taka hana upp úr baðinu:  "Mamma!  You came!", eins og ég væri sjaldséð.  Barnið er svei mér þá næstum tvítyngt, það litla sem hún talar, spurning um að fara kenna henni frönsku eða ítölsku? Nei, segi bara svona.

Jæja, best að vinda sér í verkin.  Sjáumst síðar!


Í kapphlaupi við fortíðina

Finnst dálítið eins og sé verið að berjast við fortíðina þarna.  Aðrir úti í heimi eru að nýta sér tæknina í stað þess að formæla henni.

Sjáið eftirfarandi frétt:

http://www.afterdawn.com/news/archive/11413.cfm

 

 


mbl.is „Þeir hagnast á glæpastarfsemi"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Autism Diva

Bætti við tengli á bloggsíðu Donnu Williams sem kallar sig Autism Diva.  Ég hef skrifað um hana áður en það er alltaf hressandi að kíkja á síðuna hennar.  Donna er einhverf og ötull baráttumaður einhverfra.  Hún liggur ekki á skoðunum sínum, konan sú.  Mér finnst hún frábær!

Höfundur

Þórdís Guðmundsdóttir
Þórdís Guðmundsdóttir
Áráttukrotari og úthverfabúi

Færsluflokkar

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nota bene

Veður

Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Nýjustu myndir

  • orchid-07
  • Svo þetta
  • Fyrst kom þetta

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband