Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Frú Syfja skrifar

Ég er búin að vera lasin frá því ég kom heim og hef til dæmis sofnað í sófanum á hverju kvöldi.  Sofnaði meira að segja á undan Huldu í gærkvöldi.  En ferðasagan verður að bíða þar til ég er búin að ná meira þreki.  Set þó inn eina mynd sem ég tók í Flórens.  Brúin á myndinni heitir Ponte Grazie.

272

Ja hvur....

Sælt og blessað veri fólkið.

Ég er kom heim í nótt eftir langt og strangt ferðalag, labb á gígantískri húsgagna, hönnunar, innréttinga og húsbúnaðarsýningu, margar og langar lestarferðir og svo borgarlabb með meiru.  Ég legg í ferðasöguna á morgun eða hinn en er gáttuð á atburðum á meðan ég var í burtu.  Eru okkar ágætu bílstjórar að tapa vitinu?  Það er búið að sækja um undanþágu frá Evrópureglunum um hvíldartíma, bensíngjald er í endurskoðun eftir að hafa verið óbreytt í fjölda ára og hverjar eru eiginlegu kröfurnar sem standa eftir?  Og er líkamlegt ofbeldi svo þrautalendingin?  Og hvað í dauðanum kemur þetta Abbas og Palestínumönnum við.  Það sést best á því hvað við Íslendingar erum saklaus og höfum það gott, að í þau örfáu skipti sem lögreglan lætur til sín taka byrjar söngurinn um lögregluofbeldi.  Manni hefur nefnilega sýnst að hér á Íslandi reyni menn öll önnur ráð áður en farið er að taka á fólki.  Ég er náttúrlega nýkomin frá Ítalíu, með stoppi í Bretlandi og á báðum stöðum ganga lögreglumenn vopnaðir.  Það er ekki gert hérna.  Og svo eru mér sérstaklega minnisstæðar frönsku löggurnar sem allar sem ein voru með vel notaðar og snjáðar kylfur.  Hefur einhver hér prófað að brúka sig við bandaríska lögreglumenn?  Hvað þá að ráðast á þá eins og er reglulega gert hér á Íslandi.  Ég legg til að áhugasamir reyni fyrir sér með svipaðar aðgerðir í öðrum Evrópulöndum eða US of A og athugi viðbrögðin. 

Þetta var smáfjas svona í ferðalok.  En ég er með fráhvarfseinkenni eftir Ítalíuferðina og er að búa til pizzu með mozzarella, hráskinku og rucola. Buon appetito!


Sokkar og sokkar

Hér er ferðaundirbúningur í fullum gangi, þvottavél og þurrkari ganga og frúin næstum búin að fata sig upp fyrir Ítalíuferðina.  Fékk smábreik frá ferðakvíðanum með því að fá höfuðverk og lúrði svolítið þegar ég kom heim úr vinnunni.  Bæði höfuðverkur og annað löguðust talsvert við það.

Annars langaði mig fyrst og fremst núna að benda á síðu sem Gunni vinur minn og félagar hans hjá Gogogic gerðu fyrir Iceland Express.  Hún heitir Iceland socks og þið getið búið til ferðamyndir eftir eigin höfði.  Hrikalega fyndið og ég mæli með heimsókn þangað.

En best að halda áfram störfum og Ásdís:  Ég man eftir fundinum!

Ciao!


Heimapúkinn skrifar

Hér er frúin að kafna út ferðastressi og tilheyrandi kvíða.  Við förum á fimmtudagsmorguninn ef Guð og vörubílstjórar lofa.   Það verður fínt að fara en mér er um og ó að fara frá afkvæmum og ketti.  Eins og hefur kannski komið fram er ég heimapúki hinn mesti og vil lítið vera á flandri dags daglega.  Mér líður nefnilega best heima hjá mér og hjá fólkinu mínu.  Og alltaf þegar ferðalög eru í aðsigi er ég hvekkt í nokkra daga á undan.  Allt svo í góðu lagi þegar komið er á staðinn og svaka fínt þegar ég kem heim aftur.  Á fimmtudagskvöldið á ég að vera komin til Como, þar sem við gistum, og verð svo að spankúlera á sýningu í Mílanó á föstudag og fimmtudag.  Á sunnudaginn er ferðinni heitið til Flórens og á fimmtudaginn kem ég heim aftur.

Á föstudaginn komst öll fjölskyldan í uppnám og var á mörkunum að allir fjölskyldumeðlimir beittu handablaki í hugaræsingnum.Wink  Það gerðist nefnilega í fyrsta sinn að það var bankað upp á og lítil stelpa stóð fyrir utan og spurði hvort Hulda gæti komið út að leika.  Við áttum alls ekki von á þessu og eins og ég sagði fyrr, vorum ansi hvumsa.  En Hulda var sallaróleg og sagði bara kát: "Hún er komin!  Hún er komin inn!"  Þess ber að geta að gesturinn okkar er jafnaldra Huldu, er á sömu deild og hún og býr að auki hér á móti.  Þær fóru svo saman út og Valgerður fór með til að hafa auga með okkar manneskju.  Þetta gekk allt vel en svo ákváðu þær að koma inn og gesturinn okkar sagði: "Mig langar að sjá herbergið hennar Huldu".  Þær fóru að leika sér, nágrannarnir fengu tilkynningu hvar dóttirin var niðurkominn og þetta gekk allt svo ljómandi vel.  Okkar manneskja var í sjöunda himni með heimsóknina og við að sjálfsögðu líka.  Óvænt og skemmtilegt og við sjáum svo hvernig félagslífið gengur í vor og sumar.

Og ein Huldusaga í viðbót (erfitt að hætta).  Á fimmtudagskvöldið voru pylsur í matinn sem er svo sem ekki í frásögur færandi.  Nema við keyptum flösku af Heinz relish.  Huldu þótti þetta forvitnilegt og sagði að þetta væri græn tómatssósa.  Við spurðum hvort hún vildi smakka og hún samþykkti það.  En þegar var kreist úr flöskunni á diskinn leist henni engan veginn á áferðina og eyddi mörgum orðum í að lýsa því hvað þetta væri nú ógeðslegt, vont og ætti að henda þessu bjakki í ruslið.  Þegar fólk svo fór að borða þennan ófögnuð á pylsunni sinni hafði hún þungar áhyggjur og hvatti okkur ákaft til að drekka vatn hið fyrsta og skola þessum óþverra niður.  Svo kláruðu allir að borða og það var gengið frá eftir matinn og sósur og þess háttar sett í ísskápinn.  Daginn eftir er Siggi að henda einhverju í ruslið og þar liggur efst flaskan með grænu sósunni!  Daman hafði semsagt farið inn í eldhús um kvöldið og haft vit fyrir þessari snarrugluðu fjölskyldu!

heinz

Stúlkan talar

Hulda kíkti hér fyrr í kvöld út um gluggann og sá að það var farið að snjóa.  Þótti þetta mikil firn og sagði að það væri mikill snjór og "tveir snjór", magnið var svo mikið!  Svo dró hún systur sína út að öðrum glugga og yfirheyrði hana um hvar grasið væri nú eiginlega.  Undir þessum rosalega snjó!

Svo sagði hún okkur að hún hefði fengið 'badeggí' að borða í leikskólanum.  Þetta áttum við erfitt með að skilja og spurðum hana í þaula hvort hún hefði fengið fisk? Nei.  Kjöt? Nei.  Pasta? Nei!  En svo rann upp fyrir mér ljós um síðir og ég spurði hvort hún hefði fengið spaghetti.  Já, eitthvað kannaðist hún við það.

Annars þrælaði hún móður sinni út í parís sem ég teiknaði á svalirnar og stóð sjálf sig gríðarlega vel.  Svo er hún svo dugleg að spyrja "hvað er þetta" um allt mögulegt og ómögulegt.  Reyndar verður mannfólkið dálítið skrítið þegar hún bendir á það og spyr "hvað er þetta" í staðinn fyrir "hver er þetta" en oss er nákvæmlega sama þegar hún er svona dugleg að tala.  Við foreldrarnir svífum um á bleiku skýi þessa dagana og bensínverðið hefur engin áhrif á okkur!


Snyrtileg og fróðleiksfús dama

Hulda komst í maskarann minn og náði að snyrta sig þetta líka huggulega.  Hún náði meira að segja að setja á augnhárinn svo þetta lofar góðu!Smile

Svo átti hún gullmola dagsins þegar við vorum uppi á Víðivöllum í dag.  Hún spurði pabba sinn, í þremur aðskildum spurningum hvort það væru hákarlar í Elliðavatni eða hvalir eða selir!  Algjörlega rökrétt hugsun og eðlilegar spurningar.  En þrælfyndnar!Grin

Snyrtipían!

1.apríl!

Þetta var skemmtilegasta aprílgabbið sem ég sá í dag!  Munur að geta sent tölvupóst aftur í tímann!

Annars er ég sátt við lífið og tilveruna því skatturinn er búinn að fá framtalið sitt.  Ég setti inn það sem ég gat sjálf og Þórhildur skattagúru yfirfór málið og bjargaði því sem ég er of mikill sauður til að hafa vit á sjálf.  Takk aftur og enn Þórhildur.

Árlegt eftirlit hjá Tannsa í gær og svo smá heimsókn í heilbrigðisgeirann á morgun og þá fer aðeins að léttast brúnin á minni.  Ekki það að hún hafi verið tiltölulega þung en það hefur verið dálítið mikið að gera og muna eftir (og það gengur ekki einu sinni alltaf!) og svo er frúin að auki að undirbúa Ítalíuferðina.  Kannski verð ég últraafslöppuð þegar ég kem tilbaka.

Maður verður að lifa í voninni, ekki satt?


Höfundur

Þórdís Guðmundsdóttir
Þórdís Guðmundsdóttir
Áráttukrotari og úthverfabúi

Færsluflokkar

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 22210

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nota bene

Veður

Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Nýjustu myndir

  • orchid-07
  • Svo þetta
  • Fyrst kom þetta

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband