Gengið í barndóm

Þegar ég var lítil var toppurinn á tilverunni að fá nýja liti.  Nýjan, ósnortin pakka með fullt af fallegum litum og alveg sérstakri lykt sem er af nýjum vaxlitum.  Ég gat setið vel og lengi og litað, föndrað og síðast en ekki síst, raða litunum upp í "rétta" röð (einhver að velta því fyrir sér hvort einhverfa sé ættgeng?Wink).  En þetta var auðvitað ekki gert nema maður hefði pappír til að brúka og oft var fátt um fína drætti í þeim efnum á þeim tíma.  Ég hef í gegnum tíðina litað og teiknað á alls konar afgangspappír, ritvélapappír sem manni var skammtað sem dýrum djásnum og svo var afar vinsælt að gera sér ferðir í prentsmiðjur og fá afskurði.  Úti á Nesi voru tvær prentsmiðjur og við fórum oftast í prentsmiðjuna sem var rétt hjá Nýjabæ til að afla fanga.  Svo þegar maður átti vist í Vesturbænum voru tvær prentsmiðjur þar sem hægt var að leita til.  Enn þann dag í dag líður mér langbest ef ég á bunka af pappír og nokkrar teikniblokkir. Einnig hef ég tekið út pakkann með að versla blýanta og datt aldeilis í lukkupottinn þegar ég fann blýanta af öllum stærðum og gerðum í Tékklandi, en eins og ALLIR vita (ég), framleiða Tékkar blýanta.  Strokleður eru minna spennandi, meira svona nauðsyn, þótt ég sjálfsagt gæti með herkjum dregið upp sögur af vellyktandi strokleðrum sem strokuðu minna en ekki neitt en þóttu mikið þarfaþing við sex-sjö ára aldurinn.  En í þeim bransa notar maður bara tvennt, Boxy strokleður og/eða hnoðstrokleður.  Eða ekki neitt sem var ordran í teikningu í Mynd og Hand.

Ég upplifði svo góða stund í dag þegar ég kom við í Pennanum í Hallarmúlanum og kíkti á liti.  Það var svo fantagaman að skoða og spjalla við konuna sem var að vinna þarna um liti, pallettur og pappír.  Ég ætlaði upphaflega að kaupa dálítið af vatnslitum þar sem mínar túbur eru löngu samanskroppnar og uppþornaðar (svo maður tali nú ekki um týndar í vinnustofudraslinu í bílskúrnum!) en sá svo að heimurinn hafði mikið þróast í fjarveru minni og það var komið fullt af tæknilegum nýjum litum sem gera það sama og tvo til þrjá miðla hefði þurft fyrir nokkrum árum.  Skemmst frá því að segja að ég skilaði vatnslitunum og keypti eitt undurfagurt sett af háþróuðum litum.

Og pappír!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég er búinn að lesa færsluna en hef ekkert að segja.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 22.2.2008 kl. 21:54

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Þórdís mig langar bara að spyrja eina spurningu: Þekkir þú tvær stelpur sem heita Valgerður & Eyrún?

Gunnar Helgi Eysteinsson, 22.2.2008 kl. 21:58

3 Smámynd: Þórdís Guðmundsdóttir

Eitthvað tengdar myndlist?

Þórdís Guðmundsdóttir, 23.2.2008 kl. 10:57

4 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Nei... þú hefðir vitað hvað ég væri að tala um ef þú væri sú Þórdís

Gunnar Helgi Eysteinsson, 23.2.2008 kl. 11:13

5 Smámynd: Þórdís Guðmundsdóttir

Ok!

Þórdís Guðmundsdóttir, 23.2.2008 kl. 11:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Guðmundsdóttir
Þórdís Guðmundsdóttir
Áráttukrotari og úthverfabúi

Færsluflokkar

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nota bene

Veður

Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Nýjustu myndir

  • orchid-07
  • Svo þetta
  • Fyrst kom þetta

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband