Ég er ekki hætt...

...en ég hef haft mikið að gera.  Jólasísonið í fullum gangi í vinnunni og maður kemur heim og missir meðvitund í lok dags.  Ég hef ekki þorað að mæla blóðþrýstinginn síðustu viku en er uppálagt að mæta hjá heimilislæknunni í eftirlit á næstunni.  Var reyndar orðin ágæt en sjáum til.  Afrekaði að fá magapest í byrjun viku og vottar enn fyrir ógleði núna nokkrum dögum síðar.  Myndi það kallast hálfvelgja?

Var að fá þær fréttir að ný frænka hefði bæst í heiminn í Kanada hjá þeim Jóni og Nicole.  Sendi árnaðaróskir vestur um haf og ég þori varla að hugsa um hvað ég er orðin margföld ömmu og afasystir.Smile

Og ekki er ég neitt sérstaklega dugleg hér heima fyrir í dag verð ég að viðurkenna.  Ekki búin að baka sautján sortir eða gera neitt sem virðulegar húsmæður gera.  Og kallskrattinn ætlar að yfirgefa mig á morgun til að fara í vinnuna.  Kannski get ég gert eitthvað "myndarlegt" á meðan.

Þó ekki víst.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Veit ekki hvort það er huggun, en sumir eru orðnir langafabræður...

Björn Friðgeir (IP-tala skráð) 8.12.2007 kl. 20:41

2 Smámynd: Þórdís Guðmundsdóttir

Ótugtarskapur er þetta í ættingjum okkar, við sem erum enn svo ung!

Þórdís Guðmundsdóttir, 9.12.2007 kl. 13:35

3 identicon

Það borðar enginn sautján sortir um jólin. Þær sem eru svo klikkaðir að baka svona margar sortir sitja uppi með afganga um páska og þurfa að grímuklæða jólasmákökurnar sem páskasmákökur. Ég myndi því ekki hafa nokkrar áhyggjur af því hvort að skápar séu fullir af sautján sortum eða ekki. Jólin koma hvort sem er og maður getur alveg haldið jól þó svo að ekki sé búið að taka til í öllum skúmaskotum. Maður á bara að hafa sína hentisemi og passa sig á að jólastressið éti mann ekki upp.

Kveðja,

Garún

Garún (IP-tala skráð) 10.12.2007 kl. 22:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Guðmundsdóttir
Þórdís Guðmundsdóttir
Áráttukrotari og úthverfabúi

Færsluflokkar

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 22232

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nota bene

Veður

Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Nýjustu myndir

  • orchid-07
  • Svo þetta
  • Fyrst kom þetta

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband