Hún Jóna vakti athygli á síðunni sinni, á nýrri síðu: Styrkur sem annar bloggari, Dísa Dóra, stendur fyrir. Ég hvet ykkur til að líta á síðunna, hún er innihaldsmikil, fræðandi og snertir við manni.
Þörf umræða og öflugt framlag.
Bloggar | 7.11.2007 | 15:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hulda sagði mér í óspurðum fréttum í gær: "Ég elska þig mamma." en þar sem hún talar ekki beinlínis skýrt hváði ég og sagði "Hvað! Elskarðu mig?". Og svarið kom strax: "Já. Þig." Ekki átti ég von á svona yfirlýsingum frá stúlkunni svo ég var næstum farin að brynna músum.
Það er hreinlega bara ekki til neitt betra.
Bloggar | 5.11.2007 | 14:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ef einhverjir fylltust skelfingu við síðustu færslu þá ætla ég að taka skýrt fram: Ég er ekki að fara að skrá mig í frönsku útlendingahersveitina, ekki að hlaupast á brott og taka þátt í sirkus, ekki að leita eftir ráðahag við Jóakim Danaprins eða kollega hans eða standa í neinum stórkostlegum breytingum á tilverunni.
Það sem ég meinti var að ég þarf að fínpússa hlutina hér heima og innra með minni stórfenglegu persónu svo ég gangi ekki fram af sjálfri mér aftur andlega og líkamlega. Svona virkja innra eftirlitið í fyrirtækinu. Hugsanlega leiðir það til einhverra breytinga en það kemur bara í ljós með tíð og tíma. Ég hins vegar hef ekki grænan grun hvar ég á að byrja en er þó komin með þá niðurstöðu að maður eigi að drekka meira vatn.
Bloggar | 4.11.2007 | 09:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hér sit ég í lögskipuðu straffi og velti fyrir mér hvað ég eigi að gera varðandi framtíðina. Það er víst löngu kominn tími á uppstokkun en ég hef ekki grænan grun um hvað ég eigi að gera af mér. Eitt er víst að ég verð að greiða úr kaosinu sem mér hefur tekist að hræra saman því ef núverandi stefnu er haldið til streitu, kafna ég úr streitu!
Þannig að síðastliðna viku hef ég lítið gert annað en að sitja í miðjum ruglupollinum, ekki vitandi mitt rjúkandi ráð. Best að snúa sér strax að öðrum viðfangsefnum því mér gengur ekkert betur að skrifa um þessa hluti en að díla við þá í alvörulífinu.
Ég er því miður eins og hinar prinsessurnar núna, að bíða eftir patentlausninni á hvíta hestinum, aðferðarfræði sem mér líkar engan veginn því ég hef alltaf haft þá trú að maður eigi að finna út úr hlutunum sjálfur, ekki bíða eftir að málunum sé bjargað af utanaðkomandi öflum. En það gáfulegasta sem mér hefur dottið í hug hingað til er að drekka meira vatn! Ég er eiginlega viss um að maður þurfi meira til að móta líf sitt eftir, ekki satt?
Talandi um patentlausnir, og nú þarf ég að þusa svolítið: Hvað er með þessa hábölvuðu þætti 'How to look good naked'? Það eina sem manngreyinu dettur í hug með þessar konur er að troða þeim í lífsstykki þannig að aukakílóin vella upp úr og niðurúr. Það fór dágóður tími og orka í að venja fólk af þessum óhollu flíkum og ég er viss um að kvenréttindakonur síðustu aldar væru ekki hrifnar af þessari þróun. Í þessum þáttum er áherslan um að njóta eigin fegurðar hverfandi miðað við hversu mikil áhersla er lögð á þetta bull. Og af hverju er þetta karlmaður að ráðskast með konurnar, væri ekki eðlilegra að konur kæmu að þessu máli svona eins og dömurnar í 'What not to wear'? Það er gott og blessað að hjálpa fólki með sjálfsálitið en mín skoðun er sú að það sé ekki gert með gamaldags, þvingandi hjálpartækjum og röfli um brjósta og appelsínuhúðarkrem. Ef eitthvað þá er slíkt andstætt upprunalega markmiðinu. Svona! Búin að rasa út yfir þessu í bili.
Annars vorum við Valgerður að horfa á myndina 'Miss Potter' með Reneé Zellweger áðan. Skemmtileg mynd um áhugaverða konu. Heimilisstörf voru í lágmarki í dag, tekið til í eldhúsinu og ....ekkert sérstakt annað. Mig vantar reyndar heimilishjálp - grínlaust. Ef þið vitið um góða manneskju þá sést netfangið mitt ef smellt er á höfundarmyndina.
En, ég er víst að fara að borða voða góðan mat í kvöld...hafið það gott elskurnar mínar!
Bloggar | 3.11.2007 | 17:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Það urðu þvílíkar framfarir í gærkvöldi að það bara verður að blogga um það. Það hefur alltaf verið erfitt að klippa táneglur á ungu dömunni og oftast þurft að gerast í svefni eða þá að öll fjölskyldan hefur sameinast um verkið við mikinn grát og gnístran tanna. Hulda var reyndar búin að gefa út þá yfirlýsingu fyrir nokkrum vikum að neglurnar skyldi mála og ekki klippa. Í gær datt mér í hug að bjóða nýja aðferð: Mæta með naglalakksglasið og naglaklippurnar og kynna málið þannig að fyrst yrði klippt, svo yrði málað. Viti menn! Stúlkan réttir fram fótinn orðalaust og neglur voru klipptar. Henni fannst þetta greinlega óþægilegt en lét sig hafa það og eftir á kom stóra systir og lakkaði neglurnar huggulega fölbleikar. Það hefur örugglega hjálpað til að Þórhldur og Guðrún voru hjá okkur og hún hefur verið ákveðin í að standa sig fyrir framan þær. En, þetta gekk alveg stórkostlega og daman fékk gríðarlegt hrós fyrir frammistöðuna og Guðrún tók mynd af fínu tánum hennar.
Áðan fór ég svo með Huldu í talþjálfun og hún stendur sig gríðarlega vel þar og tekur miklum framförum. Dugleg stelpa!
Bloggar | 31.10.2007 | 11:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við brugðum okkur í sveitina þessa helgi, nánar tiltekið í Biskupstungur. Þegar við vorum að leggja af stað á föstudaginn sáum við að að það var fullt tungl. Einhvern veginn hefur fullt tungl og samkvæmishald gengið brösuglega hjá okkur í gegnum tíðina, til að mynda þurfti einu sinni að kalla til sjúkrabíl í matarboði sem við héldum því óttast var að einn gesturinn væri að fá fyrir hjartað!
Með okkur komu Gaflararnir og dóttir þeirra. Fyrsta atrenna kom á föstudagskvöldið þegar húsbandið hélt að hann væri búinn að láta renna í pottinn en kom svo inn, dálítið skringilegur í framan, og sagði: "Heyrðu Þórdís! Þarf maður að láta tappa í botninn á pottinum?" Þá var potturinn ennþá tómur en hvergi fannst tappinn. Reyndar fannst hann eftir smá leit við hliðina á pottinum, í keðju nota bene og þá var hægt að láta renna í pottinn. Um kvöldið hugðist fólk svo skreppa í umræddan pott. Hafnfirska húsbandið fór fyrst út, opnaði pottinn, settlaði rauðvínsglasið og hafði það náðugt. Við hin fullorðna fólkið fylgdum á eftir. Allt var þetta gott og fínt þar til atburðarrásin fór svona í slow motion. Við frýrnar sáum lokið á pottinum byrja að detta ósköp rólega en samt of hratt til að nokkuð væri hægt að gera í því. Það datt svo í hausinn á þrem af fjórum með brauki og bramli. Við fengum kúlur og auma skalla en sem betur fer ekkert verra. Þá hafði gleymst að festa bannsett lokið. Að því loknu var farið upp úr, sest niður inni til að róa taugarnar og farið að sofa. Allt í góðu lagi þar til....
...klukkan fimm, en þá hófu eiginmaðurinn og unglingurinn að kasta upp hvort í kapp við annað. Eða kannski skiptust þau á. Þá voru þau komin með mígreni, líklega af völdum eldunarvínsins sem var notað í matreiðsluna og hafði verið keypt í Nóatúni. Undir morgun hættu uppköstin en sjúklingarnir sváfu fram eftir degi og nýttu sér verkjatöflurnar sem ég hafði af rælni keypt á síðustu stundu.
Um kvöldið var verið að grilla lambalæri, undirbúa Hasselback kartöflur og gera klárt fyrir dýrindismáltíð þegar hvað gerist? Rafmagnið fór í uppsveitum Árnessýslu. Eitthvað var hún vinkona mín óhress með að geta ekki búið til sveppasósuna sína með þessu en við reyndum að redda þessu, bjuggum til salat og smjör þurfti að duga sem meðlæti. Eins og gefur að skilja vorum menn ekki mjög matlystugir í þessu borðhaldi og á endanum vorum það bara ég og Gunni sem sátum að narta í matinn. Ég hafði, af sömu rælni og áður, gripið með mér poka af kertum, svona teljósum og stungið kertakveikjaranum með. Það kom sér aldeilis vel í myrkrinu, bæði fyrir og okkur og svo fyrir Kertasníkjana tvo sem bönkuðu upp á í myrkrinu og báðu um kerti. Rafmagnið kom svo loksins, þá var minnsta barnið sofnað og búið að setja það í rúmið, eiginmennirnir lognuðust svo útaf, þvi næst unglingarnir og við vinkonurnar gengum svo til náða upp úr tólf. Partístuð á laugardegi.En ég var svosem ekki til stórræðanna hvort eð er og hafði afar gott af því að hvíla mig aðeins. Er uppálagt að gera meira af því af yfirvöldunum og ætla að hlýða....
Þannig að kannski er betra að skoða hvað tunglið er að gera áður en maður bókar sér sumarbústað! Nei, ég segi bara svona.
Bloggar | 28.10.2007 | 19:35 (breytt kl. 19:39) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
...eða Airwaves hafa verið allsráðandi í minni vinnu síðustu tvær vikurnar. Og á meðan við framleiðum diska í gríð og erg fyrir ung og upprennandi bönd er maður gjörsamlega á sprettinum á meðan. Þannig að það var afar ánægjulegt að hátíðin skyldi byrja í dag og sömuleiðis að síðustu verkin kláruðust. Það er reyndar svaka gaman að gera þetta en maður lifandi hvað ég er þreytt núna. Það stóð þó til að halda áfram framkvæmdum á heimilinu í vikunni, við keyptum fleiri ljós um helgina og settum eitthvað af þeim upp, en ég er bara ekki að meika framkvæmdir eftir svona daga. En það er víst nýr dagur á morgun eins og hún Scarlett O'Hara sagði.
Oss erum gengin til hvílu í bili...
Bloggar | 17.10.2007 | 23:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Guðbrandur Erlingur Harðarson (a.k.a. Kisi) hefur verið staðinn að bellibrögðum nokkrum sinnum. Það hefur sést til hans þar sem hann ýtir stól upp að lokuðum hurðum, fer upp á stólinn og opnar viðkomandi hurð. Hann reyndi að opna inn á húsbóndann á heimilinu í sturtu um daginn og í kvöld reyndi hann að opna inn til Valgerðar sem brást heldur ill við. Enda gæti það reynst kettinum skeinuhætt að fara inn í hellinn þann, í það minnsta hættir annað heimilisfólk sér ekki inn að óþörfu!
Helgin fór í ýmis konar pot og lagfæringar og það er langt í að við séum búin að öllu slíku. En það er komið númer á húsið, búið að laga póstlúguna, búið að panta rúður hjá Íspan, búið að kaupa útiljós(vantar bara rafvirkjann!) og núna á eftir skal gert að borðinu sem ég sit við núna. Á það verður skrúfað tölvustatíf, lyklaborðshilla og grind til að organisera snúrur og halda þeim frá gólfinu. Já, ég fékk líka hillu samsetta um helgina og hún stendur núna við hliðina á borðinu. Næst á dagskrá er að losna við annarra manna drasl úr herberginu, taka til og þá ætti að hýrna aðeins yfir minni. Bræðragengið ætlar að koma hér í dagsbirtu von bráðar og setja niður grind fyrir pallinn. Sumarverkin endast okkur fram á vetur í þessari sveit!
Systurnar sátu báðar heima í gær þar sem að það var skipulagsdagur í báðum skólum. Þær fögnuðu fríinu með því að sofa ótæpilega og glápa á sjónvarpið. Hulda er enn mikil mömmumanneskja og sagði áðan þegar ég kom að taka hana upp úr baðinu: "Mamma! You came!", eins og ég væri sjaldséð. Barnið er svei mér þá næstum tvítyngt, það litla sem hún talar, spurning um að fara kenna henni frönsku eða ítölsku? Nei, segi bara svona.
Jæja, best að vinda sér í verkin. Sjáumst síðar!
Bloggar | 9.10.2007 | 21:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Finnst dálítið eins og sé verið að berjast við fortíðina þarna. Aðrir úti í heimi eru að nýta sér tæknina í stað þess að formæla henni.
Sjáið eftirfarandi frétt:
http://www.afterdawn.com/news/archive/11413.cfm
Þeir hagnast á glæpastarfsemi" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 9.10.2007 | 14:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 5.10.2007 | 16:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Jan. 2025
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Ýmislegt áhugavert
- Auður AkureyrarAuður
- Birta og Helgi Danmerkurgengið
- Guðrún Björk Garún, Garún
- Hulda Katrín Eldri krullhausinn
- Valgerður Dóttirin
- Guðrún Mary Seltjarnarnesdaman
- Björninn Bjössi bekkjarbróðir
- Hörður Myndasmiður Myndirnar hans Harðar
- Vinnan Mitt daglega starf
- Drawn Krotarablogg
- Cartoon Brew Hreyfimyndablogg
- Autism Diva Donna Williams
- IllustrationMundo Krotarar alheimsins