Jæja, það þurfti víst heilan Suðurlandsskjálfta til að hrista bloggletina af mér.
Við Valgerður vorum staddar í vinnunni hjá mér og sátum inn í eldhúsi ásamt flestum af vinnufélögum mínum. Fyrst hélt maður að það væri enn einu sinni verið að sprengja út við Höfðatorg en þegar þetta hélt áfram minnir mig að ég hafi sagt "Út" og allir drifu sig út. Þokkalegur hristingur og ekki góðar fréttir sem berast af Selfossi. Í Kópavoginum var allt með kyrrum kjörum, kötturinn pollrólegur og ekkert sem hefur fært sig úr stað. Svo er bara spurning hvenær eftirskjálftinn mætir á svæðið. Ég er í það minnsta búin að tína rauðvínsglösin úr grindunum fyrir ofan eldhúsborðið til að minnka líkur á að þau hristist laus og rigni yfir eldhúsið. En þetta er náttúrlega ekki neitt til að tala um miðað við hvernig ástandið er á Suðurlandinu.
Annars er allt meinhægt hjá okkur fyrir utan hristinginn. Við höfum verið að skipuleggja bakgarðinn aðeins betur og erum búin að hugsa hann svoleiðis að ekki þarf að kalla til stórvirkar vinnuvélar til að framkvæma hugmyndirnar. Hins vegar er full þörf á því sem heitir á útlensku "Elbow grease", semsagt þetta verður hörkupúl og mokstur. Einhverjar hugmyndir eru um að steypa loksins fyrir pallastoðum í næstu viku, vona að það gangi eftir.
Annars, farið þið vel með ykkur, og þið á suðvesturhorninu, farið varlega og hugið að jarðskjálftavörnunum fyrir næstu atrennu!
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Ýmislegt áhugavert
- Auður AkureyrarAuður
- Birta og Helgi Danmerkurgengið
- Guðrún Björk Garún, Garún
- Hulda Katrín Eldri krullhausinn
- Valgerður Dóttirin
- Guðrún Mary Seltjarnarnesdaman
- Björninn Bjössi bekkjarbróðir
- Hörður Myndasmiður Myndirnar hans Harðar
- Vinnan Mitt daglega starf
- Drawn Krotarablogg
- Cartoon Brew Hreyfimyndablogg
- Autism Diva Donna Williams
- IllustrationMundo Krotarar alheimsins
Athugasemdir
Gott að það fór ekki ver.
PS
Dálítið sérstakt að þú eigir vinkonu sem heitir Valgerður...
Þegar ég var unglingur, átti ég þrjár vinkonur á Selfossi sem heita Þórdís, Valgerður og Eyrún.
Gunnar Helgi Eysteinsson, 30.5.2008 kl. 06:22
Valgerður er eldri dóttir mín! En hún er líka vinkona mín
Þórdís Guðmundsdóttir, 30.5.2008 kl. 10:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.