Skamm!

Í kvöld er ég alveg gáttuð.  Og jafnvel meira en hneyksluð.  Því úrslit prófkjörs Samfylkingarinnar hér í Suðvesturkjördæmi eru alveg með ólíkindum.  Samfylkingarmenn hafa semsagt ákveðið að Katrín Júlíusdóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir hafi minna fram að færa en Gunnar Svavarsson.  Með fullri virðingu fyrir þeim karli. en þá hafði ég ekki heyrt  á hann minnst fyrr en í prófkjörsundirbúningnum sem fór fram undanfarna daga.  En þessar tvær sem lentu "undir" kallinum eru búnar að vera starfandi af fullri einurð  og heldur sýnilegri en þessi náungi.  Og þetta kemur vel á vondan þegar formaðurinn er búinn að vera að andskotast út í alla aðra flokka en sinn eigin fyrir slakan árangur í að kjósa kvenmenn sér í forsvari.  This makes me bloody furious.  Og það er sennilega merkilegast fyrir þær sakir að ég er flokksbundin Sjálfstæðiskona frá því í fyrravor en það kemur samt ekki í veg fyrir að ég þekki góðar gáfur, einurð og fylgni við málstaðin þrátt fyrir andstæðar skoðanir í pólitík.  Eins og eiginmaðurinn segir (sem er miklu helblárri en ég!), mér finnst þetta viðbjóður.  Skamm!  Þið getið gert svo miklu betur.  Skamm skamm!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála, sammála, sammála! Skil ekkert í þessum Gunnari og sé ekki betur er Hafnarfjarðarmaskínan sé að fylkja sér bak við hann. Allir spilltustu plebbar hjá krötunum í Hafnarfirði. Þessi umræðustjórnmál henna Sollu skila engu og síst af öllu styrk til kvennanna í apparatinu. Ef þið haldið að unnið sé af heilindum á kratabænum í Hafnarfirði, þá skuluð skoða málið betur. Þeir telja sig bara þurfa að segja það sem fellur vel í pöbulinn á hverjum tíma. Skítt með að trúa á það sem maður segir. Maður segir nú bara eins og Danir vinir okkar: "Fy for fanden". 

Auður stóra systir (IP-tala skráð) 6.11.2006 kl. 00:28

2 Smámynd: Þórdís Guðmundsdóttir

Heyr, heyr stóra systir!  Ég var svona að spá í hvort ég ætti að láta reiðilesturinn standa en ákvað að hann væri ágætur eins og hann er.   Ég er enn á sömu skoðun!

Þórdís Guðmundsdóttir, 6.11.2006 kl. 01:07

3 identicon

Þú getur kosið pésa frænda næstu helgi,,hann er óttaleg kerling! Mér finnst nú að hann ætti að koma með körfu fulla af möffins til þess að sleikja upp atkvæði hjá þér,,því að það getur eiginlega engin í ættinni kosið í SV kjördæmi!

Hulda Katrín (IP-tala skráð) 7.11.2006 kl. 12:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Guðmundsdóttir
Þórdís Guðmundsdóttir
Áráttukrotari og úthverfabúi

Færsluflokkar

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 22252

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nota bene

Veður

Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Nýjustu myndir

  • orchid-07
  • Svo þetta
  • Fyrst kom þetta

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband