Konur standa saman

 Ég sá þetta á síðunni hennar Dísu Dóru og birti það hér með 

Sunnudaginn næstkomandi munu konur standa saman, í bókstaflegri merkingu, fyrir betri heimi komandi kynslóðum til handa. Konur geta tekið sig saman og staðið í garðinum heima hjá sér, í sumarbústaðnum eða hvar sem þær eru staddar kl. 13 á Hvítasunnudag.

Á Reykjavíkursvæðinu er konum, og ástvinum þeirra, stefnt í Laugardalinn nánar tiltekið við Þvottalaugarnar. Það verður safnast saman og íhugað í þögn í 5 mínútur um betri heim með hreinu drykkjarvatni, nægum mat og lífi án ofbeldis, öllum börnum til handa. Hringt verður inn í þögnina kl. 13:00.

„Standing Women" er alþjóðleg hreyfing kvenna sem tók höndum saman 11. maí á síðasta ári fyrir betri heimi. Í ár verður sami háttur á og nú með þátttöku íslenskra kvenna en í fyrra stóðu konur saman í öllum heimsálfum, samtals 75 löndum. Á þessari slóð má sjá myndband frá atburðinum í fyrra: http://www.youtube.com/watch?v=_eNJ4oVQKxU

Undirrituð samtök kvenna á Íslandi eru í forsvari fyrir viðburðinum hér á landi og hvetja félagsmenn sína jafnt sem konur á landinu öllu til að taka þátt!
Kvenréttindafélag Íslands, Kvenfélagasamband Íslands, UNIFEM á Íslandi, Blátt áfram og Stígamót.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórdís Guðmundsdóttir

Það er greinilega stór dagur hjá þér!  Ég vissi um ferminguna en brúðkaupsafmæli er frábært!  Við héldum einmitt upp á átta ára brúðkaupsafmæli 22. apríl á Ítalíu en þegar við dröttuðumst loks til að gifta okkur höfðum verið saman í tólf ár!  Njóttu sem allra best!

Þórdís Guðmundsdóttir, 9.5.2008 kl. 23:14

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég stend með konum...

Gunnar Helgi Eysteinsson, 11.5.2008 kl. 15:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Guðmundsdóttir
Þórdís Guðmundsdóttir
Áráttukrotari og úthverfabúi

Færsluflokkar

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nota bene

Veður

Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Nýjustu myndir

  • orchid-07
  • Svo þetta
  • Fyrst kom þetta

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband