Margt hefur á daga oss drifið frá því síðast...
Missti reyndar af heljarinnar reunion partýi hjá Hagaskólafólkinu en framkvæmdamaðurinn Björn Friðgeir hefur sett saman póstlista fyrir fólkið og ber að hrósa honum í hástert fyrir það. Hér kemur það: HÁSTERTUR!! Mæti næst, ekki spurning.
En þá helgina skruppum við smáfjölskyldan upp í Biskupstungur og vorum í sumarbústað. Nauðsynlegt eftir annasamt haust. Og við gátum gert allt sem við ætluðum að gera sem var: sofa, hanga í pottinum, borða góðan mat, drekka oggulítið af rauðvíni, hlusta á góða tónlist, horfa á velvaldar myndir, fara í góðan göngutúr, prjóna, hanga meira í pottinum og í tilfelli Huldu Ólafíu, leika sér að nýju legókubbunum sínum. Huldu fannst reyndar afar merkilegt að fylgjast með þegar sokkar voru prjónaðir. Göldrum líkast að breyta einhverjum spotta í snotra bleika ullarsokka sem pössuðu svo á hana sjálfa!
Á þriðjudaginn átti svo heiðurskonan hún tengdamóðir mín áttræðisafmæli og við skruppum upp á Víðivelli með fangið fullt af rósum til hennar. Gat nú verið að hún ætti afmæli á Hrekkjavökunni! Einnig tókum við þátt í að gefa henni forláta hægindastól og Hulda var afskaplega dugleg að hjálpa til við að bera hann inn. Verst var þó að þegar var búið að setja stólinn upp vildi Hulda sitja í honum, fikta í sveifinni sem setur upp fótskemilinn og hundskammaði hvern þann sem reyndi að taka stólinn af henni. Amma fékk þó aðeins að prófa, með semingi þó!
Keyptum borðstofuborð og stóla notaða á miðvikudaginn. Tekk og líklega smíðað um eða uppúr 1960. Ég slysaðist nefnilega til að skoða smáauglýsingarnar á Moggavefnum og fann þetta þar. Kúnstugt, því ég skoða þær svo til aldrei. Borð sem er stækkanlegt, gæti passað við stólana mína og reyndar vantar alltaf stóla þegar stórfjölskyldurnar hittast. Við þurfum aðeins að pússa og fínisera þetta en þetta eru fallegir gripir. Ekki skemmir að núna fæ ég hitt borðið niður og get notað það sem vinnuborð sem var víst alltaf upphaflega meiningin.
Víst þarf ég að útvega mér skjalaskáp líka. Sé það núna þegar ég horfi á köttinn leggja sig í miðri hrúgunni!
Í vinnunni er jólavertíðin hafin. Ótrúlegar annir og maður er eiginlega útbrunnin á milli tvö og þrjú um daginn. Svo kemur maður heim, missir meðvitund á sófanum nema hvað yngri dóttirin kemur reglulega, hristir mann og segir: "Vakna, vakna, komdu!" Í fyrra fékk ég magabólgu fyrir jólin af stressi og kaffiþambi. Kaffidrykkjan er reyndar því sem næst horfin núna þegar ég nota ekki lengur mjólk svo kannski ætti maður bara að panta valíum hjá heimilislækninum og vera í rólyndisrússi í jólaösinni! Nei, ætli það....
Ég ætlaði að fara að tjá mig um önnur og alvarlegri málefni hér núna en nenni því ekki í bili. Set kannski upp gáfumannasvipinn næst. Haha, sénsinn!
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Ýmislegt áhugavert
- Auður AkureyrarAuður
- Birta og Helgi Danmerkurgengið
- Guðrún Björk Garún, Garún
- Hulda Katrín Eldri krullhausinn
- Valgerður Dóttirin
- Guðrún Mary Seltjarnarnesdaman
- Björninn Bjössi bekkjarbróðir
- Hörður Myndasmiður Myndirnar hans Harðar
- Vinnan Mitt daglega starf
- Drawn Krotarablogg
- Cartoon Brew Hreyfimyndablogg
- Autism Diva Donna Williams
- IllustrationMundo Krotarar alheimsins
Myndaalbúm
Bloggvinir
Af mbl.is
Innlent
- Nyrstu hrauntungurnar dreifa úr sér
- Dró upp skæri og hótaði íbúum
- Teknir við akstur undir áhrifum
- Hraun kemur úr þremur gígum: Virknin stöðug
- Að mestu bjart sunnan- og vestantil
- Nýtt fangelsi í landi Stóra-Hrauns tilbúið 2028
- Sólveig Anna furðar sig á aðferðum kennara
- Lyftari yfir fót og rjúfa þurfti hurð
- Er kynjastríð í uppsiglingu?
- Dæmdur fyrir kynferðislegt nudd á stjúpdóttur
Erlent
- Rússar sagðir útvega N-Kóreu milljón olíutunnur
- Pam Bondi næsti dómsmálaráðherra
- Handtekinn fyrir njósnir í bandaríska sendiráðinu
- Hefur áhyggjur af notkun eldflauganna
- Herra Volvo er genginn
- Sakar dómstólinn um gyðingahatur
- Merkel segir Trump heillaðan af einræðisherrum
- Hótar Bretum og Bandaríkjamönnum
- Hættir við að reyna að verða ráðherra Trumps
- Segir að Rússar séu að nota Úkraínu sem tilraunasvæði
Athugasemdir
Hæ ég verð nú að fara að kíkja í heimsókn og skoða borðstofusettið. Mjög spennandi. Verst að þeir eru ekki lengur með svona flóamarkað í útvarpinu, það væri hægt að detta niður á alls kyns dót. Var ekki hluti af dánarbúinu hennar Helgu langömmu selt í útvarpsþætti eða eitthvað álíka forðum daga?
Kveðja,
Guðrún Björk
Garún (IP-tala skráð) 3.11.2006 kl. 23:18
Jú, það var einhver svoleiðis markaður.
Settið er reyndar í vinnunni hjá Sigga því við ætlum að gera það upp þar. Ekki sniðugt að vera að dreifa meira ryki hér en orðið er. Svo segja smiðirnir í fjölskyldunni að ryk og spónn af tekkvið hafi laxerandi áhrif!
Sel það ekki dýrara en ég keypti það. En ég vona að við höfum tíma í næstu viku til að skjótast og beita sandpappírnum og olíutuskunni.
Þórdís Guðmundsdóttir, 4.11.2006 kl. 00:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.