Í kvöld þegar ég var að leggja litlu manneskjuna í rúmið sitt, búin að teikna á bakið á henni og strjúka henni á alla enda og kanta kom eftirfarandi spurning frá stúlkunni: "Mamma. Ert þú vinkona?" Ég sagði að sjálfsögðu: "Já. Ég er vinkona þín. Ert þú vinkona mín?" - "Já, mamma!".
Allir sem eitthvað þekkja okkar mál og okkar fólk vita að þetta er stór áfangi fyrir litla manneskju. Aftur og enn fór mamman svo að brynna músum þegar hún kom fram. Ég held ég biðji ekki um það betra.
Annars er stúlkan alltaf á kafi í líffræðinni og við lesum alltaf sama doðrantinn fyrir svefninn og núna kann Hulda að nefna, lungu, þarma, hjarta, þvagblöðru og fleira gott. En hún tók pabba sinn fyrir um daginn og bað um að fá að sjá upp í hann og sjá "gullið" (skoða tennur) og svo sagði hún við hann: "Gaptu meira. Má ég sjá lungu?"
En ljónynjan á víst afmæli í dag og stefnir á að borða eitthvað blóðugt í kvöld!
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Ýmislegt áhugavert
- Auður AkureyrarAuður
- Birta og Helgi Danmerkurgengið
- Guðrún Björk Garún, Garún
- Hulda Katrín Eldri krullhausinn
- Valgerður Dóttirin
- Guðrún Mary Seltjarnarnesdaman
- Björninn Bjössi bekkjarbróðir
- Hörður Myndasmiður Myndirnar hans Harðar
- Vinnan Mitt daglega starf
- Drawn Krotarablogg
- Cartoon Brew Hreyfimyndablogg
- Autism Diva Donna Williams
- IllustrationMundo Krotarar alheimsins
Athugasemdir
Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag. Hjartans óskir með daginn. Þú ert svo mikið ljón í þessum blóðugum steikum :-)
Kv. Þórhildur
Þórhildur (IP-tala skráð) 19.8.2008 kl. 18:38
Takk fyrir það. Ég hef þó þróast aðeins frá því að ég var að stela hráu nautahakki frá kettinum þegar ég var lítil!
Þórdís Guðmundsdóttir, 19.8.2008 kl. 19:47
Hjartanlegar hamingjuóskir með afmælið. Ég skil mjög vel valið á afmælismatnum:)
Kveðja,
Guðrún Björk
Guðrún Björk (IP-tala skráð) 19.8.2008 kl. 20:30
Til hamingju með afmælið
Dísa Dóra, 19.8.2008 kl. 20:53
Sæl og til hamingju með afmælið frábært að heyra um allar framfarir hjá
Huldu, það er greinilegt að hún er í þroskagírnum þessa dagana.
kveðja frá danaveldi
Erla Stefanía Magnúsdóttir, 20.8.2008 kl. 19:38
Hulda er þvílíkur snillingur með þessa bók!! Hún sagði mér allt frá þessu með lungun og hjartað.
Hulda Katrín (IP-tala skráð) 21.8.2008 kl. 00:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.