Frekar erfið vika að baki. Gríðarlega stór verkefni í vinnunni, mikið stress en allt hafðist þó að lokum. Fékk að auki leiðindakvef og er enn að fást við það vandamál. Létum slæma heilsu þó ekki koma í veg fyrir að við skryppum á Ljósanótt í gær. Skoðuðum haug af sýningum, flestum í amatöradeildinni fyrir utan eina. Sú var skipulögð af Guðmundi Rúnari Lúðvíkssyni og við lá að við misstum af henni af því hún var uppi á lofti og við höfðum ekki rænu á að fara þangað. Guðmundur hins vegar sá Sigga út um gluggann og kallaði á okkur upp. Sýningin í það minnsta endurvakti trú mína á mannkyn og myndlist þann daginn. Svo var heilsað upp á pabba og Immu og borðaðir frábærir hamborgara hjá Helgu og Stefáni. Hulda var margmál eftir flugeldasýninguna: "Þetta er fínt. Og fallegt. Og flott. Vááá!"
Húsið er bókstaflega í rúst eftir vikuna. Bara það allra nauðsynlegasta hefur verið gert, annars hefur áherslan verið á að fara skikkanlega að sofa og ná heilsu. Þannig að í dag verð ég í húsverkunum og húsbóndinn er með það verkefni að fara út og grafa holur fyrir pallinum alræmda. Ef ég hef nægilegt bragðskyn elda ég hugsanlega nýslátrað lambakjöt með rótargrænmeti í kvöld, með betri réttum sem ég veit. Annars eru allrar athygli verðar flöskurnar frá Firefly Tonics sem fást núna í búðum. Búið til af grasalæknum og á víst að vera magnaður metall. Ég prófaði eitthvað sem heitir Self Defence (tvisvar) þegar pestin fór að gera vart við sig og hingað til hefur mér gengið betur að losna við þetta heldur en Sigga sem er búinn að fást við þetta í rúma viku.
Fjölskylda og vinir flykkjast nú til að skrá sig á Facebook og ég er þar ekki undanskilin enda afar góð leið til að halda sambandi við fólk. Skoðið málið!
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Ýmislegt áhugavert
- Auður AkureyrarAuður
- Birta og Helgi Danmerkurgengið
- Guðrún Björk Garún, Garún
- Hulda Katrín Eldri krullhausinn
- Valgerður Dóttirin
- Guðrún Mary Seltjarnarnesdaman
- Björninn Bjössi bekkjarbróðir
- Hörður Myndasmiður Myndirnar hans Harðar
- Vinnan Mitt daglega starf
- Drawn Krotarablogg
- Cartoon Brew Hreyfimyndablogg
- Autism Diva Donna Williams
- IllustrationMundo Krotarar alheimsins
Athugasemdir
Sæl Þórdís. Mig langar til að þakka þér fyrir komment við færslunni minni um þann einhverfa. mat það mikils.
Gangi þér allt í haginn með litlu prinsessuna þína
Jóna Á. Gísladóttir, 2.9.2007 kl. 23:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.