Yfirfærsla frú Þórdísar

Gafst upp á að hlaða inn einfaldri mynd af kettinum á blogger svo hér hef ég aðsetur í bili.

Allt meinhægt á þessu vígstöðvum, starfsdagur á leikskólanum hennar Huldu svo dagurinn hefur farið í pössunarskiptingar og hlaup til og frá vinnu í tveimur hollum. 

Erum að leggja drög að garðbleðlunum sem við eigum fyrir framan og aftan hús og urðum því miður að hætta við tíu hæða gosbrunninn.  Eitthvað kjaftæði um byggingareglugerð, grenndarkynningar og byggingarreit.  Hélt að það tíðkuðust svona insane byggingar hér í Kópavoginum.

Nei, bara grín, en við erum samt búin að krota uppdrætti á blað og ef guð lofar kemst sköpunarverkið á koppinn einhvern tímann.   Eins ætlum við að láta moka burt hlíðinni í bakgarðinum og setja í staðinn vegg úr holtagrjóti.  Bakgarðurinn mun þá nefnast hér eftir "Pytturinn" eða "The Pit" á útlensku.  Það verður hægt að vera allsber í honum og svo verður sundlaug, sólpallur, sauna, fótsnyrtingaraðstaða og kattasandskassi þarna.  Og ekki má gleyma vatnsrennibrautinni og barnum.  Feel free to visit.  Greinilegur föstudagur mættur í mína.

En, nóg að sinni.  Ef þið villist inn á þessa síðu þá endilega kommenta/kvitta svo ég sjái að þið hafið fylgt mér hingað.

 Góðar stundir,

Þórdís.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábær síða, sniðugt að fá svona myndaalbúm og allt með. Hvað máttu vera með mikið af myndum þarna eiginlega?
Annars baráttukveðjur frá baunabúum....
Kristín og krakkarnir

Kristin og krakkarnir (IP-tala skráð) 12.5.2006 kl. 18:29

2 identicon

Vá, þvílíkur köttur! Hann er stór og flottur kúrari. Þessi síða er flott og ef það er lítið vesen að koma sér upp þarna þá kannski verði látið vaða yfir á þessar slóðir um leið og við flytjum aftur til Íslands. Góða helgi og góðar stundir í risabakgarðinum ykkar. Bestu kveðjur frá Spanjólum.

Auður stóra systir og Helgi mágur (IP-tala skráð) 12.5.2006 kl. 19:04

3 Smámynd: Þórdís Guðmundsdóttir

Það má hafa 50 MB af myndum hérna og svo er hægt að kaupa meira pláss.

Þórdís Guðmundsdóttir, 12.5.2006 kl. 23:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Guðmundsdóttir
Þórdís Guðmundsdóttir
Áráttukrotari og úthverfabúi

Færsluflokkar

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nota bene

Veður

Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Nýjustu myndir

  • orchid-07
  • Svo þetta
  • Fyrst kom þetta

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband