G.R.O.S.S.

Þeir sem lesa Calvin og Hobbes ættu að þekkja fyrir hvað þessi skammstöfun stendur.  Fyrir ykkur hin þá er þetta nafn á klúbbi sem Calvin stendur fyrir og nefnist fullu nafni Get Rid Of Slimy girlS.

Ég rifja þetta upp vegna þess að ég er búin að fylgjast með framvindu mála hjá "Frjálslynda" flokknum af athygli.  Ef einhverjir eru kandídatar í þennan klúbb þá eru það karlkónarnir sem troðast yfir allt og alla og verja sig með fúkyrðum og illmælgi ef einhver dirfist að spyrja þá út í eða gera athugasemdir við þeirra misgáfulegu gjörninga.

Sýnist að það sé kominn tími á að betri helmingurin í flokknum fari að hugsa sér til hreyfings.  Þetta er farið að líta út eins og vont hjónaband, byggt á andlegu einelti.  Vona að þau drífi sig sem fyrst og leyfi karlpungunum að eiga sig.  Þeir munu vafalítið uppskera eins og þeir sá.

Og svo eru Calvin og Hobbes(Amazon linkur en eitt Gary Larson coll. slæðist með - ekki slæmt!) ágætis meðal við hvaða kvilla sem er!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Friðgeir Björnsson

Get alveg mælt með tveimur efstu bókunum á amazon listanum :)  

Björn Friðgeir Björnsson, 29.1.2007 kl. 16:16

2 identicon

Þetta er með ólíkindum og svo tjáði sá þriðji sig í dag. Sigurjón Þórðarson spurði furðu lostinn hvernig stæði á því að Kvenréttindafélag Íslands væri að tjá sig um málið og skipta sér af innanflokksmálum FF. "Bragð er að þegar barnið finnur." Undanfarnir dagar hafa sýnt og sannað að FF er ekkert annað en forheimskaður kallaflokkur. Þetta er nú ekki björgulegt, en Jón Magnússon er augljóslega búinn að finna sér flokk til rúmstra með.

Auður (IP-tala skráð) 29.1.2007 kl. 23:01

3 identicon

Mér fannst ræða hennar Margrétar á landsfundinum helvíti góð! Sérstaklega þegar hún las þetta blessaða e-mail,,,,Endilega ekki tveir kallar einir við borð. Nauðsynlegt að hafa konu með. Hafa blómvönd eða skreytingu á borðinu. Hafa salinn skipaðan fólki þannig að það séu milli 10 og 20 manns í salnum fólk sem þekkt er af báðum stöðum.  Kveðja, Jón Magnússon"  Mér fannst þetta helvíti fyndið, ef kerling á að opna á sér kjaftin, þá á greinilega að vera blóm á borðum!! 

Hulda Katrín (IP-tala skráð) 30.1.2007 kl. 00:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Guðmundsdóttir
Þórdís Guðmundsdóttir
Áráttukrotari og úthverfabúi

Færsluflokkar

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 22250

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nota bene

Veður

Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Nýjustu myndir

  • orchid-07
  • Svo þetta
  • Fyrst kom þetta

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband