Ég reyndist sannspá með Huldu og þreytuna. Eftir baðið tók hún móður allra kveldúlfa (sbr. Saddam, mother of all battles), hoppaði í hjónarúminu, lét sig detta á rassinn og söng hástöfum heimatilbúna söngva sem virtust talsvert fjalla um pönnukökur, kisur og aðra hluti sem litlar stúlkur hafa dálæti á. Eftir að hafa borðað lyst sína af eggjum, skyri og fleiru var ungu konunni tjáð að nú væri kominn tími til að sofa. Hún bekenndi það, bauð góða nótt og steinsofnaði. Og svaf rækilega frameftir í dag. Við hittum í morgun enn eina manneskjuna og hittum aðra eftir hádegi. Svo er þetta barasta búið með upplýsingaöflun og í fyrramálið kemur niðurstaða. Ég mun ekki setja hana fram á þessum vígstöðvum, sumt þarf ekki að fara í netdreifingu og sumt þurfum við hreinlega að melta sjálf. En ég svara símtölum og tölvupósti glaðbeitt fyrir þá sem vilja nánari fréttir.
Jú svei mér þá, ég held að ég verði dálítið fegin þegar eitthvað er komið út úr þessu, þá kemur fótfestan kannski aftur.
En út í aðra sálma...klént sumar ekki satt? Júlí kominn og allt blautt og grátt. Mér finnst að það mætti alveg fara að skrúfa frá sólskininu, fá sér meira gas á grillið og taka lífinu með smá ró. Ótrúlega stutt reyndar þangað til ágúst kemur og fer að kólna. Ég er svo einföld sál, ofurseld neysluhyggjunni að ég hlakka alltaf til þegar ágúst kemur og IKEA bæklingurinn kemur. Og núna verður gleðin tvöföld því IKEA fer að opna hér rétt hjá, í Garðabæ, svo ég skal bara sjá um að vera þar. Neiii, ég er nú víst aðeins að ýkja þetta en engu að síður þá táknar ágúst dálítið fyrir mig að aksjónið er að byrja aftur og skrítin sem ég er, þá er það ekki slæmt. Ég ætlaði reyndar að vera búin að gera svo miklu, miklu meira í sumar svosem að ganga frá planinu hér fyrir framan, girða bakgarðinn og fleira en hlutirnir hafa náttúrlega raðast aðeins öðruvísi en maður ætlaði. En, sumarið er ekki búið enn, ég er búin að teikna upp framgarðinn og er jafnvel að spá í að fara afla tilboða í efni og undirvinnu. Sko, nú er ég búin að segja þetta og þá er ég að auka líkurnar marktækt á að þetta verði framkvæmt. Er það ekki annars?
Bloggar | 5.7.2006 | 11:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
...á Greiningarstöðinni.
Þetta er búinn að vera dálítið strembinn dagur hjá Huldu litlu sem aftur hitti þrjá mismunandi aðila og var prófuð í bak og fyrir. Hennar partur var þó búinn um hádegi og við vorum í viðtali eftir hádegi að segja frá því hvernig ungfrúin hagaði sér heimafyrir og hvaða takta hún sýndi prívat. Það var ágætt að hafa séns á að koma því á framfæri. Stressið er nú þó nokkuð minna en í gær en ég er samt enn að vakna á ókristilegum tímum og eiga í erfiðleikum með að sofna. Það er það sem gefur sig fyrst þegar ég stressuð, svefninn. Af hverju í skrattanum getur maður ekki misst matarlystina og orðið svona föl og interesting? Jæja, hver hefur sinn djöful að draga, ekki satt?
Hulda er orðin svolítið lúin eftir að vera vakin snemma og að standa í þessu þvargi svo nú er á dagskrá að baða stúlkuna og gefa henni kvöldmat svo hún haldist vakandi fram að hæfilegum svefntíma.
Ég býst ekki við að hún verði útskrifuð með "OK" stimpilinn á rassinum eftir þessa lotu, líklega verður stimpillinn eitthvað sem manni líkar ekki jafnvel. En það á víst að horfa á björtu hliðarnar og bjarta hliðin er sú að eftir þetta er vafalaust hægt að fá betri og hnitmiðaðri aðstoð. Annars hefur Hulda tekið stórstígum framförum í tali núna í fríinu og segir ný orð á hverjum degi. Framburðurinn er kannski ekki eins skýr og hjá enskum Shakespeare leikara en Hulda kemst þó í talþjálfun upp úr miðjum ágúst.
Ég ímynda mér samt að það verði ákveðinn léttir að vera búin að þessu af því þetta hefur verið hangandi yfir hausamótunum á okkur frá því í lok september. Vont fyrst, betra svo.
Vonum það.
Bloggar | 4.7.2006 | 18:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Kæri Jólasveinn.
Fórum á Greiningarstöðina í dag hvar Hulda var mæld og potuð og fékk að leika sér að fullt af nýju og spennandi dóti. Henni gekk misvel í prófum en fer aftur á morgun og hittir að mestu leyti sama fólk. Góðu fréttirnar eru þær að henni virðist líka þokkalega við fólkið sem er að prófa hana nema hvað hún var ekkert sérstaklega hrifin af þjónustunni hjá lækninum.
Slæmu fréttirnar eru þær að ég er nátturlega svo stressuð ennþá að að ég sef lítið og er alltaf illt í maganum. Svo er ég búin að komast að því að ef maður þarf að fá útrás fyrir spennu setur maður barasta Sibelius í græjurnar inni í eldhúsi, tekur til og snöktir soldið í takt við Sibba. Engar áhyggjur, þetta er ekki svona harmrænt, bara smá spennufall.
En í gær skruppum við í Elko og keyptum DVD tæki fyrir litla sjónvarpið fyrir s**t og kanel. Ég kom með kanelinn, Siggi sá um restina. En í alvöru talað, hræódýr græja frá Philips, spilar allt sem mér gæti dottið í hug (líka DivX) og pínulítil. Var að gera hana fjölkerfa áðan og það var svo einfalt að það er fáránlegt. Huldu þykir mikill lúxus að fá að vera inni í okkar herbergi og horfa á Tomma og Jenna og við fáum loksins að horfa á fullorðinssjónvarp frammi.
Jæja vinir og vandamenn, ég tékka mig inn á morgun með harmogbarmsögur morgundagsins. Eða kannski verðum við barasta í banastuði.
Keep a stiff upper lipp (Botox hjálpar víst mikið í þeim tilfellum!)
Bloggar | 3.7.2006 | 19:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
... kisi er allur að hressast og koma til en við erum öll að stressast af því að á morgun er fyrsti dagur með Huldu á Greiningarstöðinni (Græningjastöðinni, takk Hörður!) Helgin hefur liðið í rólegheitum og rigningu en hugsið vel til okkar á mánudagsmorgun kl. 9:00.
Öppdeit in 24 hours!!
Frú Stressuð!
Bloggar | 2.7.2006 | 23:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hann kisi okkar var ekki mjög lukkulegur í gær. Fyrst eyddum við Valgerður löngum tíma í að leita að honum út um allt hús og fundum hann eftir langa mæðu liggjandi í dúkkurúmi inni í geymslu. Svo sáum við að það voru blóðblettir í stiganum og þá var kisi tekinn og grandskoðaður. Það kom í ljós að kló á hægra afturfæti var löskuð og eftir samráð við kattaexpertinn í fjölskyldunni (Auði) var tekin sú ákvörðun að skjótast á Dýraspítalann að láta athuga lösnu loppuna. Bjössi kattavinur var dræver og ég sat ásamt kisa (sem var í búri) í aftursætinu. Ekki leist honum vel á ferðalagið enda hef ég svosem aldrei þekkt kött sem var lukkulegur með bílferðir.
Á Dýraspítalanum tók dýralæknirinn Hrund á móti okkur og skoðaði kisa sem var ljúfur sem lamb þótt ekki væri beinlínis verið að gera skemmtilega hluti við hann. Líklega hefur hann fest klóna í einhverju í ferðum sínum, við bara vitum ekki hverju. Svo var hann deyfður og sofnaði eiginlega á meðan skemmda klóin var snyrt, brennt fyrir svo hætti að blæða og búið um fótinn. Svo fékk hann pensillínsprautu og var örmerktur í leiðinni. Þetta er orðið svo þróað, hætt að tattóvera númer í eyrun á köttum heldur er pínulítill örflögu rennt undir skinnið á bakinu og svo er hægt að skanna kisa eins og ostbita í Bónus. Talsvert fljótlegra og örugglega þægilegra en að fá sér tattú.
Þegar heim var komið fékk kisi að liggja og var ekki til stórræðanna í nokkra klukkutíma. Hulda vildi kanna hvað væri í gangi með hann og þegar henni var sagt að hann væri lasinn þótti henni við hæfi að leggja sundbol hjá honum, væntanlega til að gleðja hann. Seinna um kvöldið þegar hann var kominn á ról en doldið valtur á fótunum kom Hulda til hans og vildi leika. Þau hafa nefnilega einn leik saman sem er að skrattast um með laufblöðin af drekatrénu. Kötturinn var augljóslega ekki í ástandi til að leika og ég útskýrði fyrir Huldu að kisa væri með meiddi, hefði farið til læknis að láta laga það og væri lasinn núna. Hún fór þá að klappa kisa en til þess að hún gerði það nógu varlega þá hélt hún um höndina á sjálfri sér á meðan hún klappaði, líkt og var gert við hana þegar var verið að kenna henni að klappa fyrst. En þegar leið á kvöldið og kisi fór að hressast þá losaði hann sig við umbúðirnar í hvelli, held svei mér þá að hann hafi hrist þær af loppunni og virðist bara merkilega brattur eftir hremmingarnar. Dýralæknirinn var reyndar búin að segja að það væri ekki stórmál þó hann losaði sig við umbúðirnar og kannski eins gott því kötturinn var búin að bleyta upp í þeim í vatnsdallinum og við hefðum þurft að fjarlægja þær hvort eð er. En, hann verður inni í nokkra daga og er nú bara búinn að vera miklu kátari í dag heldur en í gær.
Við hins vegar ákváðum að borða bara heima svo við gætum fylgst með sjúklingnum. Borðuðum alveg ágætar nautalundir frá Hagkaup og drukkum Chateau Coucheroy með. Svo höfðum við Créme Brulée á eftir og horfðum á Chaplin með dætrunum. Alls ekki slæmt að hafa kvöldið svona og við förum bara út að borða seinna í rólegheitunum.
Í dag hins vegar erum við kvensurnar búnar að þvælast aðeins í Smáralind eftir hádegismatinn hjá ömmu Lóu og fórum svo heim þegar Hulda var farin að vera erfið og leiðinleg. Það eru víst takmörk fyrir því hvað hún þolir að vera lengi í innkaupaparadísinni.
Eigið góða helgi.
Bloggar | 1.7.2006 | 16:56 (breytt kl. 17:01) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
... er Þórhildi óskað hjartanlega með afmælið og vona að hún hafi það gott úti á Mallorca.
Hér á Skerinu er dáðleysið alveg að ganga frá manni vægast sagt. Það er svo sannarlega erfitt að vera í fríi. Spurning um orkudrykki eða amfetamínstera (sbr. Fóstbræður) til að hressa upp á sinnið. Siggi er samt að fara að panta gler í innihurðirnar þannig að eitthvað mun þetta þokast hjá okkur.
Á morgun eru svo liðin 18 ár frá því ég hitti karlhróið og umræður standa yfir hvort við eigum að drattast út að borða eða að elda eitthvað hér heima. Lúxusvandamál...erfitt líf.
Letikveðjur,
Þórdís
Bloggar | 29.6.2006 | 14:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jæja, þá er fríið runnið upp þó það sé búið að hringja í mig þrisvar úr vinnunni að spyrja um ýmsa hluti. Hófum fríið á föstudaginn í húsdýragarðinum þar sem foreldrafélag leikskólans hélt sumarhátíð. Þar sáum við leikverkið Sigga og skessan í fjallinu sem Stoppleikhópurinn flytur. Við Valgerður vorum reyndar búin að sjá þetta áður og ekki batnaði blessað verkið við endurflutninginn. Hulda hafði þokkalega gaman af þessu framan af en fór svo að leiðast þar sem þetta er heldur langdregið fyrir þriggja ára stubba. Mín skoðun? Ég ætla að nota rétt minn til að viðra skoðanir mínar og svona eru þær: Ég hefði frekar tuggið álpappír í hálftíma en að horfa á þetta ágæta leikrit. Sorrí maður, svona er þetta. Við fengum svo grillaðar pylsur og tilheyrandi, skoðuðum dýrin og tókum svo strætó heim.
Helgin hefur gengið þó í rólegheitunum og langt í frá að maður hafi náð þeirri afkastasemi sem stóð til að hafa í fríinu. Ég er þó ekki jafnslæm og eldri dóttirin sem er ekki enn búin að taka upp úr töskunum, viku eftir að hún kom heim. Og eitthvað er ég búin að þvo af þvotti í dag sem þó inniheldur lítið af plöggum téðrar dóttur. Keyptum okkur borð á svalirnar í gær og að sjálfsögðu er alls ekki veður til að vera úti á svölum. Þetta er svona gamaldags íslenskt sumar, ískalt.
Í tilefni Jónsmessunnar útbjuggum við svona berjasnafs sem er eftir uppskrift sænsku matardívunnar Tinu Nordström. Ég hef séð þessa ágætu konu í sænska sjónvarpinu af og til og svo hjá BBC. Maður bókstaflega slefar yfir sjónvarpinu þegar hún er að störfum svo ég mæli eindregið með henni. Það var að vísu ekki lifandi leið að finna sólber á þessum árstíma en mér skilst að systir mín ætli að láta mig hafa doldið af berjum í haust þegar hún fær sín sólber. Við notuðum brómber í staðinn og verknaðurinn að troða berjunum ofan í vodkaflöskuna var með því spaugilegra sem ég hef gert lengi, sérstaklega þar sem maður þurfti að hlusta á brandara bóndans um kúk í formalíni og þess háttar grín. Svo var þetta smakkað á laugardagskvöldið og þetta var verulega fínt. Mjög elegant bragð af þessu og kom mér vægast sagt mjög á óvart. Þannig að ykkur er óhætt að prófa, bara ganga hægt um gleðinnar dyr þar sem þetta er pjúra vodka.
Jú, á laugardaginn var borðað grillkjöt frá Pottagöldrum. Frekar slakt kjöt falið í helling af grænu kryddi sem fuðraði upp utan á kjötinu. Þetta er ekki Pottagöldrum til sóma sem annars framleiða ágætis krydd. Það kvöldið var mestmegnis borðað af salati og grænmeti þannig að Danski kúrinn hélt óvart innreið sína á heimilið. Hann verður ekki við lýði í kvöld þar sem hinar sígildu pylsur verða í matinn.
Hafið það gott og hvernig væri að vígja gestabókina einhvern tímann fyrst ég er með svoleiðis í fyrsta sinn?
Bloggar | 26.6.2006 | 20:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er nafn á svona fifties kokkteil en það er ekki málið í dag. Þið munið stúlkur og drengir, tjalda bleika stöffinu í dag. Við Hulda erum í það minnsta í bleiku og það er búið að skreyta gluggaóróann í stofunni með bleikri dulu.
Eigið góðan dag.
Bloggar | 19.6.2006 | 10:00 (breytt kl. 10:01) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jæja, loksins, loksins er heilsan komin til baka. Þetta voru nú meiri leiðindin. Og Valgerður kemur til baka á morgun. Núna rétt áðan var Hulda að læðast inn í herbergi til stórusystur að leita að henni. Heyrðist voða lágt og huggulega "Hallóó", þannig að þetta verða örugglega fagnaðarfundir.
Við fórum í skrúðgöngu í gær og sáum Gunnar Birgisson og félaga á Rútstúni. Hulda fékk snuðsleikjó og djús og horfði á Björgvin Franz í forundran þar sem hann brá sér í ýmissa kvikinda líki á sviðinu. Svo fékk hún að fara í svona bollahringekju ásamt undirritaðri og skemmti sér vel.
Við vorum svo feiknadugleg (not) í gærkvöldi og settum upp hengiplöntur á svalirnar. Annars vegar Járnurt (verbena) sem lyktar alveg dýrðlega og er uppistaðan í uppáhaldskreminu hennar Huldu Katrínar og hins vegar eitthvað sem heitir Heliochrysum en ég veit ekki hvað íslenska heitið á því er. Ef einhver veit það má sá hinn sami láta mig vita. Þarf að skreppa í Garðheima á eftir og kaupa mat handa kettinum. Er að spá í að kaupa nokkrar stjúpur svo vindurinn hafi eitthvað til að tæta í sig.
See you later!
Bloggar | 18.6.2006 | 14:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eins og kom fram í síðustu færslu þá er Valgerður farin til Svíþjóðar og rétt áðan var Hulda Ólafía að fara upp á Þingvelli í fylgd vaskra meðlima Hulduhersins. Ég er semsagt ein heima, Siggi í vinnunni en jú, kötturinn er enn hérna. Það sem helst hefur sett svip á vikuna fyrir utan ferðir Valgerðar, eru veikindi fjölskyldumeðlima. Hulda byrjaði í síðustu viku og var alveg ómöguleg alla Hvítasunnuhelgina. Og af því að ungfrú þriggja ára hefur einstakt yndi af því að kyssa foreldra sína blautum kossum beint á munninn þá kom röðin að mér að vera lasin á þriðjudaginn og Siggi svo á miðvikudaginn. Því miður er ég bara ekki enn orðin góð og sit hér og fitla við tölvuna á meðan verkjataflan mín er að virka. Svo er hugmyndin að tína örlítið til í kotinu eftir róðarí vikunnar og gera svo eitthvað skemmtilegra.
Lágum í eymd okkar upp í sófa í gærkvöldi og horfðum á The Aristocrats hjá myndasölu Skjásins. Vissi ekki mikið um myndina og hafði aldrei heyrt brandarann en þetta var mjög skemmtilegt. Mæli eindregið með þessu en viðkvæmir ættu að forðast myndina.
Nágrannakona mín sem býr hér á móti var svo dugleg í morgun, þreif planið fyrir utan hjá sér með einhverri djöflamaskínu, setti sumarblóm í potta og gerði allt svo huggulegt. Af hverju get ég ekki verið svona dugleg? Sit hérna eins og ræfill með illt í hálsinum og hausnum og á ekki einu sinni almennilegt plan. Búhú... Þið hafið væntanlega heyrt frasann: "Keeping up with the Joneses..." Eða bara "Keeping up appearances" En þá þarf ég að eignast rósóttan kjól og fjólubláan hatt. Ættingjar og vinir verða svo að skipa sér sjálfir í viðeigandi hlutverk.
Já, og svona að lokum. Fann þennan link á síðunni hennar Valgerðar. Nokkuð gott fyrir heilsuna að horfa á hann....
Bloggar | 10.6.2006 | 14:31 (breytt kl. 14:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Jan. 2025
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Ýmislegt áhugavert
- Auður AkureyrarAuður
- Birta og Helgi Danmerkurgengið
- Guðrún Björk Garún, Garún
- Hulda Katrín Eldri krullhausinn
- Valgerður Dóttirin
- Guðrún Mary Seltjarnarnesdaman
- Björninn Bjössi bekkjarbróðir
- Hörður Myndasmiður Myndirnar hans Harðar
- Vinnan Mitt daglega starf
- Drawn Krotarablogg
- Cartoon Brew Hreyfimyndablogg
- Autism Diva Donna Williams
- IllustrationMundo Krotarar alheimsins