Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009
Hér með er ég flutt á mitt gamla blogg í bili.
Þakka mínum ágætu bloggvinum viðkynninguna og held áfram að kíkja á ykkur þótt ég skrifi ekki hér eins og er.
Svo er frúin með viðveru á Fésbókinni og tekur ljúfmannlega við samskiptum þar.
Kveðja,
Þórdís
Bloggar | 25.2.2009 | 18:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gleðilegt ár gott fólk og frúin er loksins mætt aftur á svæðið.
Verulega annasamur tími að baki, jólatörnin í vinnunni, jól, áramót og tilheyrandi svo maður minnist ekki á líflega og óvenjulega tíma í þjóðfélaginu.
Ég byrjaði nýja árið á því að fá bronkítis uppúr kvefnefnunni sem ég var með fyrir áramót og er að hósta upp blárestunum af þeirri heldur ömurlegu og sóðalegu útgerð.
Hins vegar tók ég þá meðvituðu ákvörðun um daginn að vera bjartsýn. Sama hvað gengur á. Bara bíta á jaxlinn, bölva í hljóði og segja við sjálfa sig að maður sé bjartsýnn. Virkar hingað til að minnsta kosti. Ég held að það sé bráðnauðsynlegt að leyfa sér ekki að að vera með svartagallsraus og niðurrifstal en maður hefur séð allt of mikið af slíkum umræðum á netinu. Þetta eyðileggur andlega heilsu og baráttuandann og bugað fólk byggir ekki mikið upp. Þetta er að minnsta kosti þau gildi sem ég brúka í bili og ég ætla að brúka þau þótt ég þurfi að fara héðan, slypp og snauð, veifandi landinu mínu bless úr Norrænu!
En ekki þar fyrir, mér finnst fullkomlega fráleitt og óásættanlegtað fólk hrekist brott af landinu sínu útaf nokkrum sjálftökupungum sem kunnu sér ekki hóf og virðast vera gjörsamlega siðblindir. Hér á heimilinu hefur verið stungið upp á vist fyrir viðkomandi í Guantanamo, plássið er að losna, er á sólríkum og góðum stað og í sama heimshluta og allar eyjurnar sem geyma gróðann.
Einnig hefur verið lagt til að senda menn sjóleiðina til Færeyja og gá hvort Færeyingar taki þá ekki um leið og grindhvalina. Ég meina er þetta ekki svona eins og japanska úrvalsnautakjötið sem JÁJ var með í brúðkaupsveislunni sinni og seldi svo restina í Hagkaupum. Gaurarnir búnir að drekka bjór og fín vín. Fengið besta fóður sem völ er á. Örugglega nuddaðir líka eins og nautgripirnir og kjötið án efa léttreykt af dýrum vindlum. Svo hafa þeir hlustað á allskonar tónlist, eins og nautin. Að vísu Elton John, Duran Duran og Tom Jones en kannski kemur það ekki að sök.
Það þarf vonandi ekki að taka það fram að ég er að grínast.
Annars er góða fólkið talsverðir innipúkar um þessar mundir í þessum leiðindakulda og allir fjölskyldumeðlimir (fyrir utan köttinn) hafa lýst eindregnum vilja til að liggja í híði til vors.
Ég lofa að það verður styttra í næstu færslu, er farin að gera (næstum því) allt það sem hefur setið á hakanum síðan í nóvember!
Hafið það gott!
Bloggar | 3.2.2009 | 19:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Jan. 2025
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Ýmislegt áhugavert
- Auður AkureyrarAuður
- Birta og Helgi Danmerkurgengið
- Guðrún Björk Garún, Garún
- Hulda Katrín Eldri krullhausinn
- Valgerður Dóttirin
- Guðrún Mary Seltjarnarnesdaman
- Björninn Bjössi bekkjarbróðir
- Hörður Myndasmiður Myndirnar hans Harðar
- Vinnan Mitt daglega starf
- Drawn Krotarablogg
- Cartoon Brew Hreyfimyndablogg
- Autism Diva Donna Williams
- IllustrationMundo Krotarar alheimsins
Myndaalbúm
Bloggvinir
Af mbl.is
Fólk
- Gæti fengið allt að 24 ára dóm
- Sláandi lík föður sínum
- Trump Jr. og Bettina Anderson farin að búa saman
- Stórbrotið verk Bjarkar í sýningu hérlendis
- Skoran á Sanchez vakti athygli á innsetningu Trumps
- Þetta lærði Tinna af móður sinni
- Klessti á vegg og átti ekki mjög gott tímabil
- Ýtir undir sögusagnir um skilnað
- Heimili Tyru Banks varð eldinum að bráð
- Írönsk poppstjarna dæmd til dauða