Helgin hjá okkur var þéttpökkuð og vel heppnuð. Hinn sígildi laugardagsmatur var borðaður hjá tengdó eins og getið var um í fyrri færslu og að því loknu brenndum við í Vesturbæinn að skoða Hagaskóla. Hulda var nokkuð impóneruð að sjá skólann hennar mömmu og hófst handa um leið og hún kom heim að pakka í tösku nokkrum vel völdum hlutum og bókum og kvaðst svo vera að fara í skólann. Henni er reyndar alltaf bent á skólann hennar Valgerðar (sem hún kveður eftir tvo daga), þegar við göngum framhjá og er farin að koma með yfirlýsingar um að hún eigi líka að fara í skóla. Um kvöldið komu svo Hafnfirðingarnir og borðuðu hjá okkur með tilheyrandi kjaftatörnum á eftir.
Ég og eiginmaðurinn tókum svo daginn snemma í gær og fórum í Blómaval. Keyptum helling af stjúpum og króknuðum næstum í leiðinni í þessu ekki-vorveðri! Versluðum vikuinnkaupin og gerðum svo það sem við aldrei annars gerum, borðuðum sunnudagsmatinn á miðjum degi! Svo brenndi fjölskyldan upp á Víðivelli, sótti fleiri blóm og drifum okkur í Fossvogskirkjugarðinn. Bræðurnir nebblega skipta með sér umhirðu á leiðum eftir árum og núna er okkar ár. Hreinsuðum beð og settum niður blóm hjá pabba hans Sigga, ömmu hans og föðurbróður. Settum svo einnig blóm niður hjá steininum hennar mömmu. Afskaplega forvitnir og spakir fuglar nýttu sér jarðvegsvinnuna og nældu sér í feita ánamaðka um leið og maður mokaði holur fyrir blómin.
Um kvöldið mættu svo Þórhildur og Guðrún til að vera hjá Huldunni á meðan við skruppum ásamt Valgerði í Borgarleikhúsið að sjá Ladda 6-tugan. Bara nokkuð hressileg skemmtun. En það hefði eiginlega þurft að vera þriðji frídagurinn til að jafna sig eftir allan hamaganginn. En, það styttist í sumarfrí!
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Ýmislegt áhugavert
- Auður AkureyrarAuður
- Birta og Helgi Danmerkurgengið
- Guðrún Björk Garún, Garún
- Hulda Katrín Eldri krullhausinn
- Valgerður Dóttirin
- Guðrún Mary Seltjarnarnesdaman
- Björninn Bjössi bekkjarbróðir
- Hörður Myndasmiður Myndirnar hans Harðar
- Vinnan Mitt daglega starf
- Drawn Krotarablogg
- Cartoon Brew Hreyfimyndablogg
- Autism Diva Donna Williams
- IllustrationMundo Krotarar alheimsins
Athugasemdir
Gunnar Helgi Eysteinsson, 3.6.2008 kl. 19:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.