Í það minnsta á efri hæðinni í húsinu mínu. Kæfandi heitt og takmarkað hvað er hægt að hafa opið út.
Ef maður hefur opið út á svalir og fylgist ekki nægilega vel með er ungfrúin farin að príla uppi á húsgögnum eða situr með lappirnar dinglandi út fyrir svalahandriðið sem er nokkuð sem oss líst illa á.
Og ef það er opið út að aftan og ekki verið að fylgjast með, stingur okkar manneskja af. Þetta gerði hún um daginn og það var taugastrekkjandi tími sem fór í að leita, allt þar til hún fannst í nágrannagarði hoppandi á trampólíni.
Eiginmaðurinn syngur fagra söngva um girðingar og þess háttar en hann er eins og framsóknarmaður, lofar miklu og efnir lítið!
Í vor var keypt turnvifta og hún gerir eitthvað smá gagn en dugar þó hvergi nærri til þegar sólin pundast inn um suðvesturgluggana og sýður íbúana.
Blessunarlega er neðri hæðin sæmileg og það hefur aðeins nýst mér því ég hef verið að taka til hér niðri, flokka pappíra og henda, henda, henda. Og meira að segja ekki búin enn.
En suðurríkjastemningin blífur í bili sýnist mér.

Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Ýmislegt áhugavert
- Auður AkureyrarAuður
- Birta og Helgi Danmerkurgengið
- Guðrún Björk Garún, Garún
- Hulda Katrín Eldri krullhausinn
- Valgerður Dóttirin
- Guðrún Mary Seltjarnarnesdaman
- Björninn Bjössi bekkjarbróðir
- Hörður Myndasmiður Myndirnar hans Harðar
- Vinnan Mitt daglega starf
- Drawn Krotarablogg
- Cartoon Brew Hreyfimyndablogg
- Autism Diva Donna Williams
- IllustrationMundo Krotarar alheimsins
Athugasemdir
Hulda er greinilega að fíla sig í sumarfríi. Mér finnst þú ansi góð að þú hafir náð að gera eitthvað heima hjá þér. Þegar ég var í fríi þá kom ég mér ekki í neitt. Maður á svo erfitt með að halda sig inni í svona góðu veðri og síðan er maður aldrei viss hvað maður á að gera að sér úti.
Þórhildur (IP-tala skráð) 16.7.2007 kl. 23:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.