Í gær stóð til að fara og sjá Brúðubílinn hér á Hvammsvelli (local gæsluvöllur fyrir Sala og Lindahverfi). Um morguninn var hins vegar mígandi rigning og rok og yours truly þurfti að þjóta út á svalir í hendingskasti og gera þær þannig að allt mitt góss fyki ekki út um allar koppagrundir. Það gaf augaleið að göngutúr upp á Hvammsvöll var ekki á dagskrá. Undir kvöld var veðrið svo orðið ágætt sem sýnir og sannar að við búum við sýnishornaveðurfar hér á Íslandi. Og loksins þegar er búið að setja rimlagardínur í eldhúsið, svona til að forðast stiknun, þá hverfur sólin. Ég er einhvern veginn ekki að finna taktinn eftir það sem gekk á í síðustu viku og langar helst að fara bara í vinnuna. Skrítið ekki satt? Veit ekki hvort ég vil fara til útlanda, hvernig eða hvert. Veit ekki hvað ég á að gera við blessað barnið og er alveg ringluð. Gat þó sofið næstum alla nóttina, vaknaði augnablik en í stað þess að vera vakandi í einn, tvo tíma eins og mynstrið hefur verið síðustu vikur þá gat ég sofnað fljótlega aftur. Í mínu tilfelli er það kraftaverk.
Myndlistamönnum á þessu heimili þótti fyndinn myndabrandarinn í Blaðinu í dag, um Zidane og Materazzi. Þetta er hægt að sjá á bladid.net ef menn nenna að bíða eftir því að blaðið hlaðist niður. Og talandi um fótbolta. Allir sem mig þekkja vita að ég er ekki mjög áhugasöm um boltaíþróttir. En mér finnst okurstarfssemin sem var í kringum sýningarnar á HM hér á landi ótrúlega lágkúruleg. Og að heimta að Skjárinn lokaði fyrir þær stöðvar sem sýndu þetta. Ég get mér þess til, ég hafði ekki lyst á að gá, að úrslitaleikurinn hafi líka verið í læstri dagskrá. Ég hef af og til í gegnum tíðina nefnilega druslast til að horfa á leiki á HM og alltaf á úrslitaleikinn. Hafi menn ævarandi skömm fyrir. Hjá flestöllum þjóðum og þjóðum sem eru verr settar en við er HM sýnt í opinni dagskrá. Public service, þið vitið. En við Íslendingar erum víst svo "rík" að það dugar ekki hér.
Skrítið, ég finn ekki fyrir öllu þessu ríkidæmi í mínu lífi! Bíllinn minn er ekki Bentley, hann er 11 ára gömul Toyota Corolla sem er í þessum töluðu orðum í viðgerð svo hægt sér að kreista ögn meiri þjónustu út úr honum. Vissulega bý ég í sérbýli en ég er að klára það smátt og smátt, svona til að forðast meiri háttar skuldsetningar svo ég er ekki á leiðinni í Innlit Útlit/Veggfóður á næstunni. Og Íslendingar eru svo ríkir að þeir hafa ekki efni á að vera heima hjá börnunum sínum, hafi þeir áhuga á því. Og nú eru sumir orðnir svo ríkir og vel settir að þeir geta vísvitandi farið að mjólka samborgara sína. Þá er ég að vitna í góðmennin sem eru að kaupa upp sumarbústaðalönd þar sem leigusamningar eru við það að renna út. Svo er fólki boðið að gera nýjan leigusamning upp á margfalda upphæð eða kaupa viðkomandi land á uppsprengdu verði. Eiginmaðurinn kommenteraði á að þetta væri dálítið eins og Scrooge myndi haga sér. Eða menn með Corleone eftirnafnið.
Prinsar á meðal oss, komnir til að taka alþýðuna í kakóið. Bara smá fýla, eða eins og Billy Connolly sagði: "Oh, I do love a good rant!"
Flokkur: Bloggar | 12.7.2006 | 12:20 (breytt kl. 12:22) | Facebook
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Ýmislegt áhugavert
- Auður AkureyrarAuður
- Birta og Helgi Danmerkurgengið
- Guðrún Björk Garún, Garún
- Hulda Katrín Eldri krullhausinn
- Valgerður Dóttirin
- Guðrún Mary Seltjarnarnesdaman
- Björninn Bjössi bekkjarbróðir
- Hörður Myndasmiður Myndirnar hans Harðar
- Vinnan Mitt daglega starf
- Drawn Krotarablogg
- Cartoon Brew Hreyfimyndablogg
- Autism Diva Donna Williams
- IllustrationMundo Krotarar alheimsins
Athugasemdir
Ég skil ekkert í þér að þú skulir ekki veðsetja húsið upp í topp til að skreyta stofuna með Erik Jörgensen og fleiri dönskum hönnunarsnillingum til að komast í þessa montþætti:) Að öllu gamni slepptu þá hlýtur nú að fara að koma að því að Íslendingar andi nú aðeins rólega í kaupæðum sínum, nú sérstaklega þegar vextir fara síhækkandi. Kannski verð ég heppin og fasteignaverð hrynja og við getum flutt inn í einhverja villu rétt hjá ykkur fyrir skít á priki (kannski væri meira að segja "veðsettu" húsgögnin innifalin:)).
Ertu ekki bara svona ringluð yfir ástandinu því í raun er eftir að setja fram hvernig framhaldið verður?
Kveðja,
Garún
garun (IP-tala skráð) 12.7.2006 kl. 13:05
Það gefur augaleið að þið eigið að búa í Kópavogi þar sem Þið eruð nú meira eða minna hér í Kópavoginum með annan fótinn í tennis og þess háttar! Ég hugsa að einhverjir fari að koksa á villunum fljótlega, framboðið virðist vera farið að aukast nú þegar.
Jú, ætli ruglan stafi ekki af óvissunni sem er í gangi og líklega smá svona eftirskjálfti.
Þórdís Guðmundsdóttir, 12.7.2006 kl. 14:43
Hvað er að þér að vilja ekki líta út eins og þú ert rík! Þú getur borgað með vísa og svo tekið út á vísa næstu mánaðamót til þess að geta borgað reikningin! Einfalt ekki satt!(nei) Það sem ég legg til að þið gerið,,í stað þess að fara til Írlands,,er að fara til sólarlanda,,bara gera ekki rassgat í tvær vikur,,og einu áhyggjurnar eru hvort maður hefur látið á sér nóg sólarvörn,,og hvort maður á að fá sér rauðvín eða hvítvín um kvöldið! Annars bara letilíf á sundlaugarbakkanum!! Eiginlega hefur maður enga orku til þess að hugsa um eitthvað annað!Er eiginlega enþá að kúpla mig inn í hverdagslífið!
kv
Hulda Katrín
Hulda Katrín (IP-tala skráð) 12.7.2006 kl. 16:02
Líka,,stærsta ákvörðun á sólarströnd, er hvort maður eigi að splæsa á sig 5 evru flösku um kvöldið,,annars eru bara fínar flöskur frá 3-4 evrur!
kv
hulda
Hulda Katrín (IP-tala skráð) 12.7.2006 kl. 16:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.