Færsluflokkur: Ferðalög
Tiltektinni sem rætt var um í síðustu færslu var frestað því við og Suðurnesjafólkið mæltum okkur mót við Norðlendingana þar sem þau voru komin suður til að vera í sumarbústað í Biskupstungunum. Fórum semsagt austur fyrir á laugardagsmorgninum, gistum á Laugarvatni um nóttina og fórum svo heim á sunnudagskvöldið. Skemmst frá því að segja að það var svakalega, obboðslega gaman og takk kærlega fyrir okkur. Kristín, Siggi og afkvæmi komin heim frá Baunalandi og ægilega gaman að allir skyldu hittast. Vantar bara Kanadabúana en það verður þá bara seinna. Ég tók engar myndir í kvöldmatnum því ég var upptekin af því að setja saman salat og fleira en Njarðvíkurfólkið kom með hrikalega góðan kjúkling með sérútbúinni grillsósu, ásamt hinu sígilda kartöflusalati hennar Auðar. Skora hér með á fólkið að birta eða vísa á þessar fínu uppskriftir.
Myndir og skýringar á eftir, athugið að sjálfsögðu að smella á myndirnar til að stækka þær.
Kubb var spilað í gríð og erg í sumarbústaðnum. Ég tók ekki myndir í fyrsta hollinu því ég var að spila þá sjálf en kallpeningurinn tók sér mót sem endaði á hrikalegan hátt, svo hrikalegan að sumir voru farnir að grátbiðja um að mega skipta um lið!
Siggi Hrafn sýnir snilldartakta, æfða í Danmörku. Jón Gestur og Siggi fylgjast með af aðdáun!
Önnur mynd af Sexköllunum (það voru 6 stk. af þeim semsagt!)
Gísli Freyr stórsjarmör og kvennaljómi var ekki með í Kubb en hélt frúnum félagsskap á meðan drengirnir spiluðu.
Og restin af börnunum fór á meðan á stóra rólóinn ásamt fylgdarliði. Hér eru þau að koma tilbaka úr þeirri ferð.
Skvísurnar Rebekka, Birta og Hulda í pottinum.
Pottagæslumenn voru á staðnum og Gerður skrásetti aðgerðirnar.
Kristín búin að bætast í pottinn og farin að hafa sín áhrif á börnin!
Á meðan var Gísli Freyr að gera að Orminum Langa og naga bolta til hlýðni.
Seinna bættist svo fleira fólk í pottinn og spillti ungviðinu jafnvel meira en orðið var! Allt fór þó vel fram.
Við vorum komin inn á Hótel Eddu á Laugarvatni um hálftólfleytið og ég bara varð að taka þessa mynd af útsýninu.
Morguninn eftir var morgunmaturinn afgreiddur í Samkaup-Strax og borðað fyrir utan í glampandi sól og eins og sést var Hulda Ólafía á því að besti morgunverðurinn væri Pepsi Max og vatn til skiptis þar til Helga tók í taumana og kom ís ofan í barnið svo hún fengi einhverja næringu.
Svo var haldið aftur í Brekkuskóg og heilsað upp á liðið aftur, grillaðar pylsur, spilað meira Kubb og meira að segja farið í snúsnú!
Gísli Freyr æfir göngu með Þórhildi og Stefaníu
Rosaleg tilþrif í snúsnú en Stefán tók lífinu með ró á meðan.
Frændsystkinin Helgi Hrafn og Hulda Ólafía náðu vel saman í ferðinni.
Hulda "nær"pabba sínum með myndarlegu strái! Hulda sveitastelpa að chilla!
Skruppum líka á Geyssvæðið, hér eru feðginin að bíða eftir að Strokkur gjósi og á hinni myndinni eru aðrir fjölskyldumeðlimir að bíða eftir hinu sama. Skringilegur skurður á þeirri mynd er vegna þess að ég þurfti að skera burt heilan ferðamann sem potaði sér í veginn.
Og hér gaus Strokkur!
Eftir Geysisferðina var farið í Slakka og þar sáum við jólasteikina, ég meina kalkún, holdi klædda. Svo var auðvitað sjálfgefið að fá sér ís áður en rennt var í bæinn.
Og hér getið þið séð hvernig krapaát Valgerðar og Stefaníu skilaði sér. Reyndar kom Auður auga á að þetta var nefnt "Crap" í sjoppunni á Slakka og stúlkurnar sem voru að afgreiða urðu nú heldur kindarlegar þegar þeim var sagt hvað crap þýðir í raun og veru!
Svo brenndum við í bæinn með viðkomu í Nóatúni á Selfossi, elduðum dýrðlegan lambahrygg með hunangsmöndluhjúp og hrundum svo uppgefin í bólin. Alveg svakalega gaman að gera þetta svona og skemmtilegt að hitta fólkið úti á landinu okkar bláa. Alveg spurning hvort það eigi ekki að gera eitthvað svipað á næsta ári, kannski á nýjum og spennandi stað? Hvað finnst ykkur?
Ferðalög | 1.8.2008 | 14:52 (breytt kl. 14:55) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Jan. 2025
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Ýmislegt áhugavert
- Auður AkureyrarAuður
- Birta og Helgi Danmerkurgengið
- Guðrún Björk Garún, Garún
- Hulda Katrín Eldri krullhausinn
- Valgerður Dóttirin
- Guðrún Mary Seltjarnarnesdaman
- Björninn Bjössi bekkjarbróðir
- Hörður Myndasmiður Myndirnar hans Harðar
- Vinnan Mitt daglega starf
- Drawn Krotarablogg
- Cartoon Brew Hreyfimyndablogg
- Autism Diva Donna Williams
- IllustrationMundo Krotarar alheimsins