Færsluflokkur: Bloggar
Her erum vid i Galway og buin ad eiga frabaera daga.
Borgin er falleg og thvi midur hofum vid bara rett getad skodad hana i halfan dag eda svo. Vid bokstaflega VERDUM ad koma hinad aftur. Stadurinn sem vid gistum a er lika alveg frabaer, vid getum hiklaust maelt med thessu BnB.
Brudkaupid var mikil upplifun og mer skilst ad sidustu gestirnir hafi farid heim kl. fjogur ad morgni. Vid hofdum ekki svona mikid uthald og forum um eittleytid. I gaerkvoldi var okkur svo bodid heim til Marteins og Clodagh thar sem thau bua uti i sveit hreint og beint og med ilminn af hrossatadi i bakgardinum.
Eg held ad vid seum ordin allthreytt eftir allt partistandid svo vid reynum ad vera god og thaeg naestu daga og borda bara gras synist mer.
En nuna erum vid ad fara ad henda ofan i toskurnar og fara med lestinni aftur til Dublin.
Astarkvedjur fra Galway
Irlandsfararnir
Bloggar | 2.9.2006 | 09:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vid erum komin til Irlands eftir langt og leidinlegt ferdalag.
Bordudum versta hamborgara i heimi a Stansted a stad sem heitir O'Neill's. Komum skitthreytt upp a hotel i gaerkvoldi en drottudumst samt ut ad fa okkur ad borda. Endudum a agaetri kra og fengum mat sem var jafngodur og maturinn fyrr um daginn var vondur. Dagurinn i dag fer i ad versla naudsynjar og lestarmida og vonandi ad skoda okkur um i leidinni.
Forum til Galway i fyrramalid.
Soknum ykkar allra og reynum ad vera i sambandi aftur.
Bloggar | 29.8.2006 | 11:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Glitnishlaupið fer fram á morgun og þar munu tvær góðar frænkur hlaupa sína 10 kílómetrana hvor. Glitnir heitir á starfsmenn sína, 3000 kr. á kílómeter, sem fer til þess góðgerðarfélags sem starfsmaðurinn velur. Einnig getur almenningur heitið á starfsmenn. Þórhildur hleypur til stuðnings Umsjónarfélagi einhverfra og ég er búin að heita á hana. Ég skora á ykkur að gera slíkt hið sama.
ÁFRAM STELPUR!
Bloggar | 18.8.2006 | 18:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ég er eiginlega hálf orðlaus yfir dauðatíðindum dagsins. Dagurinn byrjaði reyndar á að við ókum framhjá slysi á mótum Laugavegs, Suðurlands og Kringlumýrabrautar. Þar lá mótorhjól á hliðinni og tveir bílar á ská og skjön. Löggan út um allt og gatnamótin hálflokuð. En þetta rataði ekki í fréttirnar ólíkt öðrum slysum svo vonandi fór þetta betur en á horfðist. Brá mér reyndar í jarðarför hjá mætum manni seinna um morguninn og var hann svo jarðsettur í nýja kirkjugarðinum sem er hér í hverfinu. Blessuð sé minning hans.
En lygilegur fjöldi fólks virðist vera orðið afsiðað/siðblint/snældugalið miðað við háttalag þess úti í samfélaginu. Nauðganir á skemmtistöðum, hraðakstur við öll möguleg og ómöguleg tækifæri, ótæpileg áfengis og vímuefnaneysla og almennar barsmíðar, tannútsláttur og eyrnastýfingar. Spennandi umhverfi til að búa í og ala börnin sín upp í?
En litli jón út í bæ er enginn eftirbátur, birtingarmyndirnar eru bara öðruvísi. Það er sómafólkið sem hendir rusli þar sem það stendur, eyðir meiru en það aflar, borðar meira en það torgar, skilur við fleiri maka en það endist með, safnar klamidíu og lekanda og skilur svo ekkert í því af hverju getnaður á óskabörnunum gengur brösuglega. En svona höfum við Ísland í dag.
Ég veit að þetta er óttalegt svartagallsraus en manni er doldið þungt í sinni þegar tollurinn verður svona hár á einum degi. Ég ætla ekki einu sinni að reyna að vera hress og peppuð, tilefnið er lítið til þess háttar æfinga í dag.
Bloggar | 16.8.2006 | 23:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þessi Verslunarmannahelgi er búin að vera aldeilis ágæt. Á laugardeginum hittist Hulduherinn og grillaði lambalæri og rann það ljúflega niður ásamt prýðilegum rauðum vökva.
Svo á sunnudeginum skruppum við og heimsóttum Óla sem átti fimmtugsafmæli þann dag. Um kvöldið brunuðum við svo í Borgarnes ásamt Gunna og Kiddý og sáum Benedikt Erlingsson gera Agli Skallagrímssyni snilldarskil. Ef þið hafið einhvern möguleika á, þá mæli ég eindregið með þessari sýningu. Mér skilst hún sé fram í september. En ég var ekkert yfir mig hrifin af málsverðinum sem við fengum á undan í samliggjandi húsi. Ágætt kjöt, stjörf kartafla og naumur skammtur af grænmeti. Stressuð þjónusta. Mætti senda liðið sem vinnur þarna á námskeið hjá Nordica því það fólk fer létt með að þjóna miklum mannfjölda.
Mánudagurinn fór svo í leti og videogláp með dætrunum sem var bara aldeilis fín notkun á deginum.
Merkilegt að menn telja hátíðarhöldin vel heppnuð þegar fáar nauðganir eru og einungis eitt banaslys. Ég held að við Íslendingar séum að stíga nokkur stór skref afturábak með svona hugsunarhætti. Eins og þessi helgi sé eitt allsherjar drykkjublót og mannfórnir séu bara sjálfsagður fórnarkostnaður. Nokkur líf ónýt, hvað er það á móti hamingju minnar timbruðu þjóðar?
Bloggar | 8.8.2006 | 20:46 (breytt kl. 20:47) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég ætla að taka mér það bessaleyfi að tengja yfir á myndasíðuna hans Gunna og á þessa snilldarmynd af krullhausnum. Svo mæli ég eindregið með því að þið kíkið á hinar myndirnar hans sem eru alveg frábærar.
Bloggar | 3.8.2006 | 23:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hjartanlegar hamingjuóskir með afmælið til frú Vigdísar í Kanada!
Hvenær á svo að heimsækja Skerið?
Bloggar | 2.8.2006 | 10:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er algjör fásinna að planta sér við tölvuna í þessu veðri, sömuleiðis: Hvað eruð þið eiginlega að gera inni?
Út með ykkur að leika!
Bloggar | 1.8.2006 | 18:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég gat ekki loggað mig inn á bloggið alla helgina en ætlaði bara að láta ykkur vita að ég er ekki hætt!
En nú er semsagt búið að bóka Írlandsferðina og alla gistingu. Hulda kemur ekki með því þetta er ekki alveg fyrir litlar manneskjur að díla við að mæta í brúðkaup og tilheyrandi og svo að þvælast um í borgarumhverfi. Svo gefst okkur náttúrlega smá tími til að sinna stóru systur sem hefur dálítið setið á hakanum í sumar. En Hulda og kisi verða í frænkupössun og nú þarf að kenna kisa að lúra inni í þvottahúsi á nóttunni svo hann hræði ekki pössunarpíurnar með næturstjákli.
Er búin að komast að því að ég þoli illa mjólkurvörur og eftir harmrænt sorgarferli er ég búin að sættast við þá staðreynd að ég er hætt á spenanum fyrir fullt og allt. Enda kannski kominn tími til miðað við aldur og fyrri störf! En mér sýnist að ég laumi enn um sinn smá mjólk í kaffið af og til.
Molluhiti og skýjað í dag og ég þarf að vinna í fjórar vikur áður en ég fer út. Úff!
Bloggar | 31.7.2006 | 11:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Gat nú verið að góða veðrið kæmi þegar ég er byrjuð að vinna aftur! Og á morgun er spáð glampandi sól og getið þið hver verður að vinna í gluggalausu herbergi lengst inni í húsi! En þó skilst mér að eiginmaðurinn ætli að hætta kannski örlítið fyrr í vinnunni svo einhver nýting náist á góða veðrinu.
Annars er ástandið meinhægt, ágætt að vera farin að vinna aftur og líka ágætt að vita að ég á dálítið frí eftir ennþá. Helsti ókosturinn við að vera komin í vinnuna er sá að mér dettur ekkert í hug til að borða í hádeginu. Heiti maturinn hjá Nóatúni er hvorki gómsætur, hollur né hagstæður í innkaupum. Ég er orðin þreytt á að borða samlokur og sömuleiðis hið klassíska kombó: jógúrt/skyr/rúnnstykki/ávextir. Salatborðið er svo sérkapituli útaf fyrir sig. Stundum er barasta varla salat þarna, þetta er orðið svona safn af mismunandi pasta, couscous, kjötbollum, kotasælu og niðursoðnu grænmeti og ávöxtum. Hvar er salatið? Ég auglýsi hér með eftir brillíant hugmyndum að hádegismat.
Hulda og Valgerður hafa það ágætt saman hér heima og eru mjög samtaka um að drasla til af lífi og sál. Segið svo að 3ja ára og 14 ára geti ekki haft sama áhugamál!
Bloggar | 19.7.2006 | 23:42 (breytt kl. 23:43) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Júní 2025
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Ýmislegt áhugavert
- Auður AkureyrarAuður
- Birta og Helgi Danmerkurgengið
- Guðrún Björk Garún, Garún
- Hulda Katrín Eldri krullhausinn
- Valgerður Dóttirin
- Guðrún Mary Seltjarnarnesdaman
- Björninn Bjössi bekkjarbróðir
- Hörður Myndasmiður Myndirnar hans Harðar
- Vinnan Mitt daglega starf
- Drawn Krotarablogg
- Cartoon Brew Hreyfimyndablogg
- Autism Diva Donna Williams
- IllustrationMundo Krotarar alheimsins
Myndaalbúm
Bloggvinir
Af mbl.is
Fólk
- Stelur frá þeim ríku
- Þorbjörn selur Grindvíkingum MGGA-derhúfur
- Af listum: Mannát og mótmæli
- Þeir sem komast á bragðið fá ekki nóg
- Þetta völdu börnin
- Anna Júlía hlýtur Munduverðlaunin 2025
- Dóttir Völu og Hilmis fædd
- Það andaði ró- og góðsemd af sviðinu
- Dómur: Skipulagt tilfinningalegt ferðalag
- Glæsileg mæðgin prýða forsíðu tískutímarits
Viðskipti
- Hið ljúfa líf: Nokkrar yndislegar klukkustundir í Kaíró
- Tækifæri í Færeyjum
- Verðlagseftirlitið lífgað við?
- Regluverkið kæfir frumkvæði
- Svipmynd: Krefjandi verkefni er besti skólinn
- Eftirspurnin fór fram úr væntingum
- Abler þjónustar bresk risafélög
- Hagar horfi til innri og ytri vaxtar á næstunni
- Deilan er dýr
- Donald Trump mistókst að hagræða í ríkisrekstri