Ég hef verið orðlaus...mikið til.

Það er víst langt um liðið síðan ég skrifaði enda hefur lífið verið með miklum hamförum síðustu tvo mánuði hjá okkur sem hjá öðrum. Fólkið í kringum okkur er að fást við ýmsa erfiða hluti og svo á fimmtudaginn urðu tvö bílslys sem snertu fólk í lífi okkar. Fyrir mikla guðs mildi fór betur en á horfði í báðum tilfellum og það setur í rétt samhengi peninga og stjórnmálanuddið sem annars liggur eins og mara á allri þjóðinni.

Hvað get ég sagt? Ég hef, eins og flestir býst ég við, sveiflast á milli þess að vera leið og fjúkandi reið. Seinna ástandið er skárra því þá hefur maður margfalt meiri orku til að gera hluti. Þegar verst lét dreymdi mig manndráp og blóðsúthellingar nokkrar nætur í röð og maður vaknar svolítið skringilegur á morgnana út frá svoleiðis draumum. Held annars að Hollendingar hafi helst fengið að kenna á bræðinni (NB í draumunum). En það er annars farið að sjatna í manneskjunni og síðustu nætur hafa verið mun þolanlegri.

Annars höfum við brúkað klassísk meðöl til að hressa fjölskylduna við og höfum verið að horfa á Friends í akkorði, nokkuð sem við höfum í bakhöndinni á álagstímum. Meira að segja Hulda er orðin húkkuð og bað feimnislega í gærkvöldi að sjá Vini.

Þess utan hefur lífið gengið sinn vanagang og nóg að starfa á öllum vígstöðvum. Það stórafrek er að nást að koma þvottahúsinu í starfhæfara form og núna er ég að þvo allt furðusmádraslið sem safnast alltaf neðst í þvottakörfuna. Þið vitið stakir sokkar í skrítnum litum, föt sem eru úr litum og efnum sem geta ekki farið með öðru og furðulegir inniskór sem alltaf átti að þvo. Er ekki til neitt gott samheiti yfir þetta?

Að lokum: þið gætuð gert margt vitlausara en að fjárfesta í nýja disknum hans KK. Hann er góður fyrir sálartetrið og pottþéttur út í gegn.

Hafið það gott


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til þess að gera fatahrúgu mjög auðvelda,,þá er bara kaupa allt svart! Það var mjög auðvelt þegar ég bjó ein að eiga allt svart,,þá meina ég allt!! Ég er samt viss um að litla Hulda mun gera þvílíka uppreisn ef öll hennar föt séu svört! 

Hulda Katrín (IP-tala skráð) 25.10.2008 kl. 22:49

2 identicon

Það er nokkuð rétt að maður er bara þakklátur fyrir lífið í dag.... Hafið það nú gott á þessum leiðindatímum. Ekki láta þessa leiðinda Breta og Hollendinga trufla ykkur of mikið.

Kveðja að norða

Kristín Helgadóttir (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 21:48

3 Smámynd: Erla Stefanía Magnúsdóttir

Ég ætti kannski að ná mér í þessa "vini" til að horfa á

Sendu knús á Huldu og hafið það sem allra best.

Kær kveðja Erla Stefanía

Erla Stefanía Magnúsdóttir, 27.10.2008 kl. 19:36

4 Smámynd: Dísa Dóra

Já það er svo sannarlega til betri verðmæti en peningar.  Gott að allt fór vel í árkekstrunum.

Hafðu það gott

Dísa Dóra, 30.10.2008 kl. 03:58

5 Smámynd: Þórdís Guðmundsdóttir

Það er reyndar bara sárt að horfa á Klovn, þeir eru svo meinfyndnir. Góð hugmynd!

Þórdís Guðmundsdóttir, 1.11.2008 kl. 14:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Guðmundsdóttir
Þórdís Guðmundsdóttir
Áráttukrotari og úthverfabúi

Færsluflokkar

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 22223

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nota bene

Veður

Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Nýjustu myndir

  • orchid-07
  • Svo þetta
  • Fyrst kom þetta

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband